fbpx

Dagskrá

landsfundar Landssambands eldri borgara 23. – 24. maí 2017

haldinn í Hraunseli, félagsheimili eldri borgara í Hafnarfirði

Þriðjudagur 23. maí

11:30   Afhending fundargagna hefst

13:00   Setning landsfundar, Haukur Ingibergsson formaður LEB

Ávarp Forseta Íslands, Guðni Th. Jóhannesson

Ávarp félags- og jafnréttismálaráðherra, Þorsteinn Víglundsson

Ávarp bæjarstjórans í Hafnarfirði, Haraldur L. Haraldsson

13:40   Kosning embættismanna fundarins

  • Kosning tveggja fundarstjóra
  • Kosning tveggja fundarritara
  • Kosning kjörbréfanefndar

Inntaka nýrra aðildarfélaga

Skýrsla stjórnar

  1. Skýrsla formanns, Haukur Ingibergsson
  2. Skýrsla gjaldkera, Ástbjörn Egilsson, lagðir fram ársreikningar LEB 2015 og 2016

Umræða um skýrslu stjórnar

Afgreiðsla ársreikninga

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun og tillaga um árgjald 2018 og 2019

Afgreiðsla tillögu um árgjald

15:30   Kaffihlé

16:00   Kynntar ályktanir fundarins, Sigurður Jónsson, formaður málefnanefndar

16:20   Starf málefnanefnda

  • Kjaranefnd
  • Heilbrigðisnefnd
  • Félagsmálanefnd
  • Laganefnd

18:30   Í beinu framhaldi af starfi málefnanefnda verður fordrykkur í boði Hafnarfjarðarbæjar á veitingastaðnum Kænunni við Hafnarfjarðarhöfn og kvöldverður sem kostar 2.500 kr. á mann sem greiðast við afhendingu fundargagna.

Miðvikudagur 24. maí

09:00  Starf málefnanefnda

09:30   Afgreiðsla mála

11:00   Kosningar

  1. kosning formanns í 2 ár
  2. kosning 4 aðalmanna og 3 varamanna í stjórn LEB í 2 ár
  3. kosning 2 skoðunarmanna ársreiknings LEB og ”Listin að lifa” og 2 til vara í 2 ár
  4. kosning 2 aðalmanna og 2 varamanna í ritstjórn ”Listin að lifa” í 2 ár.

11:30   Önnur mál

12:00   Fundarslit