![Loading Events](https://www.leb.is/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/resources/images/tribe-loading.gif)
- This event has passed.
Kjör aldraðra rædd í sjónvarpsþætti á Hringbraut
12 sep 2021 @ 20:30 - 21:30
![](https://www.leb.is/wp-content/uploads/2021/09/KjorAldradra-12.09.21-Hringbraut.jpg)
Missið ekki af þættinum KJÖR ALDRAÐRA sem sýndur verður á Hringbraut, sunnudaginn 12.sept. kl. 20:30. Þátturinn verður frumsýndur á sunnudagskvöldið en verður svo endursýndur nokkrum sinnum eftir það.
Í þættinum er dregin upp raunsönn mynd af kjörum aldraðra á Íslandi í dag, en stór hópur þeirra býr við mjög kröpp kjör og erfiðar aðstæður, ekki síst vegna mikilla skerðinga í almennatryggingakerfinu.
Sigmundur Ernir Rúnarsson stjórnar þættinum, en viðmælendur hans eru Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara, Ingibjörg Sverrisdóttir formaður Félags eldri borgara í Reykjavík auk Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR og Stefáns Ólafssonar prófessors í félagsfræði.