![Loading Events](https://www.leb.is/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/resources/images/tribe-loading.gif)
- This event has passed.
Fundur með verkefnastjóra Neyðarlínunnar
23 jan @ 10:00 - 11:00
Fjarfundur með Neyðarlínunni um efni á www.112.is varðandi ofbeldi gagnvart öldruðum í tengslum við skýrslu sem kom þá frá Ríkislögreglustjóra varðandi ofbeldi sem tilkynnt var til lögreglu frá eldri borgurum.
Neyðarlínan heldur úti svokallaðri ofbeldisgátt á 112.is þar sem fjallað er um birtingarmyndir ofbeldis og úrræði til að brjóta vítahring ofbeldis. Fjallað er um efnið út frá ólíkum sjónarhólum, bæði ólíkar tegundir ofbeldis (ss. kynferðisofbeldi, ofbeldi í nánum samböndum, mansal) og fyrir ólíka áhorfendur (gerendur, þolendur, aðstandendur).
Fundinn sitja Magga Dóra Ragnarsdóttir starfrænn hönnunarleiðtogi og Helgi Pétursson formaður LEB.