![Loading Events](https://www.leb.is/wp-content/plugins/the-events-calendar/src/resources/images/tribe-loading.gif)
- This event has passed.
Fundur um ofbeldi gagnvart eldra fólki
8 jan @ 10:00 - 11:00
Fjarfundur með Möggu Dóru Ragnarsdóttur verkefnastjóra Neyðarlínunnar um ofbeldi gagnvart eldra fólki. Fyrir hönd LEB sitja fundinn Helgi Pétursson formaður og Viðar Eggertsson skrifstofustjóri LEB.
Neyðarlínan heldur úti svokallaðri ofbeldisgátt á 112.is þar sem fjallað er um birtingarmyndir ofbeldis og úrræði til að brjóta vítahring ofbeldis. Fjallað er um efnið út frá ólíkum sjónarhólum, bæði ólíkar tegundir ofbeldis (ss. kynferðisofbeldi, ofbeldi í nánum samböndum, mansal) og fyrir ólíka áhorfendur (gerendur, þolendur, aðstandendur).