380. – Stjórnarfundur LEB
Fundurinn er haldinn sem fjarfundur fimmtudaginn 29. febrúar og hefst kl. 10.00. Aðalstjórn LEB: Helgi Pétursson formaður, Drífa Sigfúsdóttir varaformaður, Sigrún C. Halldórsdóttir gjaldkeri, Ingibjörg Sverrisdóttir ritari, Þorbjörn Guðmundsson meðstjórnandi. Varastjórn LEB: Ásgerður Pálsdóttir Jónas Sigurðsson Magnús Jóhannes Magnússon
Fundur með ráðherrum og þingmönnum Suðurkjördæmis
Formaður Félags eldri borgara á Selfossi, Magnús J. Magnússon hefur boðað til fundar föstudag 1. mars um stöðu eldri borgara í íslensku samfélagi. Á fundinum munu hin ýmsu mál sem brenna sérstaklega á eldri borgurum eins og kjaramál, búsetuúrræði, hjúkrunarheimili og heilbrigðismál, verða rædd og reifuð. Til fundarins hefur verið boðaðir allir formenn aðildarfélaga LEB […]
Fundur Velferðarvaktar
Fundur Velferðarvaktar verður haldinn í fundarherbergi í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu þriðjudaginn 12. mars kl. 13.15 – 15.00. Fulltrúi LEB í Velferðarvaktinni er Drífa Sigfúsdóttir, varaformaður LEB.
Fundur um Uppbyggingaráætlun Sjómannadagsráðs, Hrafnistu og Naustavarar
Fundurinn verður haldinn mánudaginn 18. mars klukkan 10:00-12:00 á Sléttuvegi 25-27. Tilgangur fundarins er fyrst og fremst að fá að heyra ykkar skoðun á uppbyggingu lífsgæðakjarna Sjómannadagsráðs fyrir eldri borgara. Við viljum hanna með fólki, en ekki bara fyrir fólk. Á fundinum munum við einnig kynna það starf sem unnið hefur verið síðustu mánuði um […]
Fundur Verkefnastjórnar Gott að eldast
Fundur verkefnastjórnar Gott að eldast er haldinn í fundarherbergi í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, Síðumúla 24, fimmtudaginn 21. mars, kl. 14.00 – 16.00 Helgi Pétursson formaður LEB situr í verkefnastjórninni.
Ritstjórnarfundur LEB blaðsins
Fundurinn er haldinn í aðsetri LEB að Ármúla 6, 108 Reykjavík Fundinn sitja: Ragna Gestsdóttir ritstjóri, Helgi Pétursson formaður LEB og Viðar Eggertrsson skrifstofustjóri LEB.
Skrifstofa LEB lokuð yfir páskahátíðina
Skrifstofa LEB er lokuð frá og með skírdegi, fimmtudaginn 28. mars til og með mánudeginum, 2. í páskum, 1. apríl. Opnum aftur þriðjudaginn 2. apríl. Gleðilega páskahátíð!
381. – Stjórnarfundur LEB
Fundurinn er haldinn sem fjarfundur miðvikudaginn 3. apríl og hefst kl. 10.00. Aðalstjórn LEB: Helgi Pétursson formaður, Drífa Sigfúsdóttir varaformaður, Sigrún C. Halldórsdóttir gjaldkeri, Ingibjörg Sverrisdóttir ritari, Þorbjörn Guðmundsson meðstjórnandi. Varastjórn LEB: Ásgerður Pálsdóttir Jónas Sigurðsson Magnús Jóhannes Magnússon
Fundur kjaranefndar LEB
Fundur kjaranefndar LEB verður haldinn sem fjarfundur, mánudag 8. apríl kl. 11.00 Kjaranefnd LEB Þorbjörn Guðmundsson, formaður, Reykjavík Jón Ragnar Björnsson, Hella Jóna Ósk Guðjónsdóttir, Hafnarfjörður Ásgerður Pálsdóttir, Blönduós Sigurbjörg Gísladóttir, Reykjavík
Fundur Velferðarvaktar
Fundur Velferðarvaktar verður haldinn í fundarherbergi í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu þriðjudaginn 12. mars kl. 13.15 – 15.00. Fulltrúi LEB í Velferðarvaktinni er Drífa Sigfúsdóttir, varaformaður LEB.