Málefnahópur ÖBÍ um kjaramál stendur fyrir málþingi
Málefnahópur ÖBÍ um kjaramál stendur fyrir málþingi þann 17. maí 2022 á Grand Hóteli (Háteig), frá kl. 13:00 til 15:30. Dagskrá: Ávarp: Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður ÖBÍ Lásar gera bara gagn ef þeir eru læstir: Kolbeinn H. Stefánsson félagsfræðingur og dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands Hvar er kaupmáttaraukningin mín? Geirdís Hanna Kristjánsdóttir varaformaður kjarahóps ÖBÍ Pallborð: Bergþór […]
Stöðufundur um Bjartan lífsstíl
Verkefnastjórar Bjarts lífsstíls, Ásgerður Guðmundsdóttir og Margrét Regína Grétarsdóttir, fara yfir stöðu verkefnisins með Andra Stefánssyni framkv.stj. ÍSÍ og Helga Péturssyni formanni LEB. Fundinn situr einnig Viðar Eggertsson skrifstofustjóri LEB.
Aðalfundur Öldrunarráðs Íslands
Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 28, 105 Reykjavík í Setrinu, inn af veitingastaðnum á fyrstu hæð, mánudaginn 23. maí 2022 Kl. 14:00 Helgi Pétursson formaður er fulltrúi LEB í stjórn Öldrunarráðs Íslands. Dagskrá: Hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt lögum ráðsins Nafnakall fulltrúa með atkvæðisrétt Lögð fram skýrsla stjórnar ásamt endurskoðuðum ársreikningum Skýrsla Rannsóknarsjóðs Lögð […]
Skrifstofan lokuð á Uppstigningardag
Skrifstofan er lokuð fimmtudaginn 26. maí, Uppstigningardag
Dagur eldra fólks í Þjóðkirkjunni
Þjóðkirkjan helgar eldra fólki Uppstigningardag. Helgi Pétursson formaður LEB mun flytja ávarp í tveimur guðsþjónustum. Annars vegar í Guðríðarkirkju í Grafarvogi kl. 11.00. Hins vegar í Kópavogskirkju kl. 14.00. Að guðsþjónustum loknum verður boðið upp á veitingar í safnaðarheimilum kirknanna
359. Stjórnarfundur LEB
Stjórnarfundurinn verður að þessu sinni haldinn sem staðfundur í aðsetri LEB, Ármúla 6, 108 Reykjavík í fundarherbergi 3ju hæð, kl. 14.00 Stjórn LEB: Helgi Pétursson formaður Drífa Jóna Sigfúsdóttir, varaformaður Sigrún Camilla Halldórsdóttir gjaldkeri Ingibjörg H. Sverrisdóttir ritari Þorbjörn Guðmundsson meðstjórnandi Varastjórn LEB: Ásgerður Pálsdóttir Ragnar Jónasson Jónas Sigurðsson
Aðalfundur Almannaheilla, samtaka þriðja geirans
Aðalfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 2. júní nk. kl. 15.30 í húsi Krabbameinsfélagsins við Skógarhlíð 8, Reykjavík. Fundarstjóri verður Breki Karlsson. Í lögum samtakanna segir: gr Aðalfundur Almannaheilla fer með æðsta vald og ákvörðunarrétt í málefnum samtakanna. Skal hann að jafnaði haldinn fyrir 15. júní ár hvert. Senda skal út fundarboð til aðildarfélaga með minnst fjögurra […]
Skrifstofan lokuð annan dag Hvítasunnu
Skrifstofan er lokuð mánudaginn 6. júní, 2. í Hvítasunnu
Skrifstofan er lokuð á þjóðhátíðardaginn
Skrifstofan er lokuð föstudaginn 17. júní, þjóðhátíðardaginn.
Viljayfirlýsing um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk
Þriðjudaginn 21. júní kl. 15:30 verður Viljayfirlýsing um heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk undirrituð á Kjarvalsstöðum af ráðherrum félags- og vinnumarkaðsmála, heilbrigðismála og fjármála- og efnahagsmála, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Landsambandi eldri borgara. Dagskráin samanstendur af ávörpum frá ráðherrum félags- og vinnumarkaðsmála og heilbrigðismála og undirritun allra viðeigandi aðila. Meðal viðstaddra verður Helgi […]