Fundur með Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála
Fundurinn verður um málefni eldra fólks sem GEV - Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála mun leggja sérstaka áherslu á á nýhöfnu ári, 2024. Fundurinn mun fara fram að Suðurlandsbraut 24 þar sem GEV hefur aðsetur sitt og hann munu sækja f.h. LEB: Helgi Pétursson formaður og Viðar Eggertsson skrifstofustjóri.
Fundur kjaranefndar LEB
Kjaranefnd LEB heldur fjarfund, þriðjudaginn 13.febrúar kl. 10.00. Rædd verður staða samningaviðræðna. Sérstakur gestur: Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og 1. varaforseti ASÍ.
Samstarfsnefnd um málefni aldraðra
Fundur Samstarfsnefndar um málefni aldraðra er haldinn í fundarherbergi í félags og vinnumarkaðsráðherra miðvikudaginn 14. febrúar kl. 9.30 - 11.00 Fulltrúi LEB í Samstarfsnefndinni er Helgi Pétrursson formaður LEB
Fundur verkefnastjórnar Gott að eldast
Fundur verkefnastjórnar Gott að eldast er haldinn í fundarherbergi í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, Síðumúla 24, fimmtudaginn 1. febrúar, kl. 14.00 – 16.00 Fulltrúi LEB í verkefnastjórninni er Helgi Pétursson formaður.
Félags- og vinnumarkaðsráðherra veitir LEB styrk
Félags- og vinnumarkaðsráðherra veitir ýmsum félagasamtökum styrki vegna verkefna og reksturs þeirra. Ráðherra hefur ákveðið að veita LEB styrk Vísað er til umsóknar um styrk á grundvelli auglýsingar 15. september sl. um úthlutun styrkja til félagasamtaka til verkefna og starfsemi sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins. Félags- og vinnumarkaðsráðherra býður styrkþegum að vera viðstaddir athöfn og […]
Fundur Öldrunarráðs
Fundur Öldrunarráðs Íslands er haldinn að Droplaugastöðum í hádeginu mánudaginn 19. febrúar 2024. Fulltrúi LEB í Öldrunarráði er Herlgi Pétursson formaður LEB.
379. – Stjórnarfundur LEB
Fundurinn er haldinn sem fjarfundur fimmtudaginn 22. febrúar og hefst kl. 10.00. Aðalstjórn LEB: Helgi Pétursson formaður, Drífa Sigfúsdóttir varaformaður, Sigrún C. Halldórsdóttir gjaldkeri, Ingibjörg Sverrisdóttir ritari, Þorbjörn Guðmundsson meðstjórnandi. Varastjórn LEB: Ásgerður Pálsdóttir Jónas Sigurðsson Magnús Jóhannes Magnússon
Formannafundur – fjarfundur
Fjarfundur með formönnum aðildarfélaga LEB, haldinn sem fjarfundur, föstudag 23. febrúar kl. 10.00. Fundarefni: SPARA appið. Tryggvi Snær Guðmundsson frá SPARA kynnir hvernig hægt er að skrá félagsmenn aðildarfélaga LEB í appið. Önnur mál.
Samráðsfundur um heildstæðrar stefnuvinnu í málefnum eldra fólks í Reykjavík
Síðustu vikur hefur verið í gangi undirbúningur vegna heildstæðrar stefnuvinnu í málefnum eldra fólks í Reykjavík. Stefnan á að endurspegla og hafa samhljóm við áherslur í öðrum stefnum Reykjavíkurborgar er lúta að velferð borgarbúa. Velferðarráð hefur skipað stýrihóp með kjörnum fulltrúum sem hefur falið Ráðgjafa- og hugbúnaðarfyrirtækinu Í ferlinu er horft til þess að til […]
Málþing Öldrunarráðs Íslands
Öldrunarráð Íslands stendur fyrir málþingi miðvikudaginn 28. febrúar kl. 10:00 – 14:00 á Hótel Hilton. Málþingið ber yfirskriftina „Þú þarft að skipta um lykilorð – að eldast á viðsjárverðum tímum“. Á mælendaskrá verða fulltrúar frá lögreglu, CERT-IS, 112.is, Bjarkarhlíð, Ísland.is, verkefnisstjórn „Gott að eldast“ og að lokum verður einnig fulltrúi frá Landsbankanum með innlegg. Sjá […]