Viðtal hjá Speglinum á RÚV
Helgi Pétursson, formaður FEB og Ingibjörg Sverisdóttir, stjórnarmaður LEB og formaður FEB, verða í viðtali um málefni eldra fólks í þættinum Speglinum á RÚV, í kvöld kl. 18:00 - 18:30
Formaður LEB fundar með Búmönnum
Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara, fundar með forsvarsmönnum Búmanna. Búmenn er húsnæðissamvinnufélag sem hefu það markmið að auka jöfnuð og fjölbreytni í húsnæðismálum fyrir 50 ára og eldri.
Kjör eldra fólks rædd í Silfri Egils á sunnud. 19. september
Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara, tekur þátt í umræðu um kjör eldra fólks í þættinum Silfri Egils á sunnudaginn 19. september 2021.
Formaður LEB verður gestur í Karlakaffi í Fella- og Hólakirkju
Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara, verður gestur í Karlakaffi í Fella- og Hólakirkju föstudaginn 24. september. Boðið er upp á kaffi, vínabrauð, spjall og samveru.
Formaður LEB tekur þátt í Kosningavöku RÚV
Formaður Landssambands eldri borgara, Helgi Pétursson, tekur þátt í Kosningavöku RÚV vegna Alþingiskosniganna 2021. Rætt verður við Helga um kl. 01:00 eftir miðnætti.
Stjórnarfundur í Öldrunarráði Íslands
Formaður Landssambands eldri borgara, Helgi Pétursson, sækir stjórnarfund hjá Öldrunarráði Íslands.
Hvar viljum við búa?
Opinn fundur borgunarráðs og öldungaráðs fjallar um sjálfstæða búsetu eldri borgara, á opnum fundi í Tjarnarsalnum í Ráðhúsi reykajvíkur. Formaður LEB, Helgi Pétursson, og stjórnamaður LEB, Þorbjörn Guðmundsson taka þátt í fundinum ásamt fleirum. Dagskrá Kl. 14.00 - Ávarp borgarstjóra - Dagur B. Eggertsson Kl. 14.10 - Formaður öldungaráðs - Berglind Eyjólfsdóttir Kl. 14.20 - […]
Ársfundur Málsóknarsjóðs Gráa hersins
Formaður LEB, Helgi Pétursson, situr fund Ársfund Málsóknarssjóðs Gráa hersins. Stjórn Málsóknarsjóðsins fundar með stofnfélögum á fjarfundi.
Formaður LEB á ferð í Borgarnesi
Formaður LEB, Helgi Pétursson, fundar með Félagi eldra borgara í Borgarnesi og nágrenni, sunnudaginn 3. október kl. 15:00 Fundurinn verður haldinn í Brákarhlíð
Formaður LEB á ferð um Vestfirði – Hólmavík
Helgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara, ferðast um Vestfirði og heimsækir félög eldri borgara á Hólmavík, Ísafirði, Bolungarvík og Patreksfirði dagana 6. - 8. október 2021. Hér má sjá tímasetningar á hverjum stað fyrir sig: Miðvikudaginn 6. október 2021 - kl. 14:00 í Hólmavík Fimmtudaginn 7. október 2021- kl. 14:00 á Ísafirði Fimmtudaginn 7. október […]