Fundur með fulltrúum Miðflokksins
Helgi Pétursson, formaður LEB, Þorbjörn Guðmundsson, stjórnarmaður LEB og Steinunn Valdimarsdóttir, verkefnastjóri LEB, funda með fulltrúm Miðflokksins, Karl Gauta Hjaltasyni og Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um áhersluatriði eldra fólks í aðdraganda kosninga 2021.
Fundur með Rauða kross Íslands
Helgi Pétursson, formaður LEB fundar með fulltrúum Rauða kross Íslands
Fundur fólksins – Samtal kynslóðanna
LEB - Landssaband eldri borgara tekur þátt í Fundi fólksins dagana 3. og 4. september 2021. Á föstudeginum stendur LEB - Landssamband eldri borgara og LUF - Landssamband ungmennafélaga að Samtali kynslóðanna sem haldið verður í stóra salnum í Norrænahúsinu. Fulltrúar elstu og yngstu kynslóðanna koma saman og ræða saman um málefni sem sameinar þessa […]
Fundur fólksins – Fjölbreyttari búsetuúrræði eldra fólks
LEB - Landssaband eldri borgara tekur þátt í Fundi fólksins dagana 3. og 4. september 2021. Staður: Gróska hugmyndahús Landssamband eldri borgara efnir til umræðu um fjölbreyttari búsetuúrræði fyrir eldra fólk - einhvers konar millistig milli heimilis og hjúkrunarheimilis, sem er ein af áherslum Landsambandsins í aðdraganda Alþingiskosninga 2021. Stjórnandi umræðunnar er Erna Indriðadóttir, fjölmiðlakona […]
Þátttaka í sjónvarpsþætti um málefni eldra fólks hjá Hringbraut
Formaður LEB, Helgi Pétursson, ásamt fleirum, tekur þátt í sjónvarpsþætti hjá Hringbraut sem fjallar um málefni eldra fólks. Þátturinn verður verður í sýningu 12. september n.k. Upptaka þáttarins fer fram í dag.
346. Stjórnarfundur LEB
Fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Aðalstjórn: Helgi Pétursson formaður Drífa Sigfúsdóttir Valgerður Sigurðardóttir Ingibjörg Sverrisdóttir Þorbjörn Guðmundsson Varastjórn: Ásgerður Pálsdóttir Ingólfur Hrólfsson Ragnar Jónasson
Fundur með formönnum aðildarfélaga LEB – Landssambands eldri borgara
Fjarfundur með formönnum allra aðildarfélaga að Landssambandi eldri borgara.
Kjör aldraðra rædd í sjónvarpsþætti á Hringbraut
Missið ekki af þættinum KJÖR ALDRAÐRA sem sýndur verður á Hringbraut, sunnudaginn 12.sept. kl. 20:30. Þátturinn verður frumsýndur á sunnudagskvöldið en verður svo endursýndur nokkrum sinnum eftir það. Í þættinum er dregin upp raunsönn mynd af kjörum aldraðra á Íslandi í dag, en stór hópur þeirra býr við mjög kröpp kjör og erfiðar aðstæður, ekki […]
Formaður LEB fundar með Félagi eldri borgara í Rangárvallarsýslu
Formaður LEB, Helgi Pétursson, fundar með Félagi eldri borgara í Rangarvallarsýslu. Fundurinn verður haldinn á Hellu
Kynning hjá FEB á hugmyndum að nýju greiðslukerfi að ellilífeyri
Formaður LEB, Helgi Pétursson, tekur þátt í fundi, í boði Kjaranefndar LEB og Kjaranefndar FEB, sem haldinn er hjá FEB - Félagi eldri borgara í Reykjavík, að Stangarhyl 4. Vilhjálmur Egilsson mun kynna þar hugmyndir um nýtt kerfi eftirlauna/lífeyris sem kynntar hafa verið á vettvangi Sjálfstæðisflokksins og liggja að einhverju leiti til grundvallar að stefnumörkun […]