Landsfundur LEB 2021 á Selfossi
Landsfundur LEB verður að þessu sinni haldinn á Selfossi á Hótel Selfossi. LEB mun einnig njóta aðstoðar Félags eldri borgara á Selfossi við framkvæmd landsfundarins. Dagskrá landsfundar samkv. lögum LEB: 1. Kosning tveggja fundarstjóra og tveggja fundarritara. 2. Niðurstaða kjörbréfanefndar. 3. Skýrsla stjórnar um starfsemi sambandsins í liðnu starfsári. 4. Ársreikningur lagður fram til umræðna […]
Samstarfsnefnd um málefni aldraðra
Fundurinn verður haldinn í félagsmálaráðuneytinu, Skógarhlíð 6. Fulltrúi LEB á fundinum er Þórunn Sveinbjörnsdóttir fyrrverandi formaður.
Formaður LEB í viðtali á Rás 2
Formaður LEB, Helgi Pétursson, í viðtali í morgunútvarpi Rásar 2 við Huldu Geirsdóttur og Rúnar Róbertsson um það sem bar helst til tíðinda á landsfundi LEB miðvikudaginn 26. maí.
Formaður LEB á fund með formanni ÖBÍ
Formaður ÖBÍ, Þuríður Harpa Sigurðardóttir, hefur boðið formanni LEB, Helga Pétursson, að koma á sinn fund og ræða ýmis hagsmunamál sem tengjast báðum samtökunum.
Formaður LEB í Kastljósi
Helgi Pétursson formaður LEB verður gestur fréttaþáttarins Kastljóss á RÚV
Aðalfundur Almannaheilla
Aðalfundur Almannaheilla, samtaka þriðja geirans, verður haldinn að Urriðastræti 14, Garðabæ. LEB er aðildarfélag og sækir formaður LEB aðalfundinn
343. Stjórnarfundur LEB
Ný stjórn kemur í fyrsta sinn saman. Á fundinum skiptir stjórn með sér verkum. Aðalstjórn: Helgi Pétursson formaður Drífa Sigfúsdóttir Valgerður Sigurðardóttir Ingibjörg Sverrisdóttir Þorbjörn Guðmundsson Varastjórn: Ásgerður Pálsdóttir Ingólfur Hrólfsson Ragnar Jónasson
Fulltrúar LEB eiga fund með forseta ASÍ
Forseti ASÍ, Drífa Snædal, hefur boðað formann LEB, Helga Pétursson, á sinn fund til að ræða ýmis mál er snú að hag eftirlaunafólks. Fundinn sækir jafnframt Þorbjörn Guðmundsson, stjórnarmaður LEB.
Formaður LEB gestur FEBG
Félag eldri borgara í Garðarbæ - FEBG, heldur aðlfund sinn kl. 13.30 í Jónshúsi, Strikinu 6, Garðabæ. Sérstakur gestur fundarins er nýr formaður LEB, Helgi Pétursson.
Jafnréttisstofa fundar með fulltrúum LEB o.fl.
Jafnréttisstofa heldur fjarfund og hefur boðið fulltrúum LEB að taka þátt í fundinum. DAGSKRÁ Um lög nr. 85 og 86/2018 Fyrirhugaðar breytingar á lögum nr. 85/2018 um jafna meðferð utan vinnumarkaðar Mál sem farið hafa fyrir kærunefnd jafnréttismála Helstu niðurstöður könnunar sem lögð var fyrir hagsmunaaðila í ágúst 2020 Almennar umræður