Fundur með Janus – Heilsueflingu
Fulltrúar Janusar - Heilsueflingar halda fund með fulltrúum stjórnar LEB vegna átaksverkefnisins Heilsuefling eldra fólks sem er í bígerð á vegum LEB. Á fundinum munu fulltrúarnir kynna hugmyndafræði Janusar - Heilsueflingar. Fundurinn er haldinn í aðsetri LEB að Ármúla 6 og sækja hann Helgi Pétursson formaður LEB, Þorbjörn Guðmundsson stjórnarmaður LEB og Þórunn Sveinbjörnsdóttir fyrrv. […]
Fundur með ungmennum vegna Samtals kynslóðanna
Formaður LEB, Helgi Pétursson, ásamt stjórnarmanni LEB, Þorbirni Guðmundssyni, og verkefnastjóra LEB, Steinunni Valdimarsdóttur funda með fulltrúum LUF, Landssambandi ungmennafélaga um fyrirhugaða málstofu Samtal kynslóðanna á Fundi fólksins sem haldinn verður í Norræna húsinu 3.-4. september nk. Fundurinn fer fram í aðsetri LEB að Ármúla 6.
Fundur með forsvarskonu Vöruhúss tækifæranna
Formaður LEB, Helgi Pétursson, á fund með forsvarskonu Vöruhúss tækifæranna, Hjördísi Hendriksdóttur. Fundurinn fer fram í aðsetri LEB að Ármúla 6.
Fundur með biskupi Íslands
Fulltrúar LEB, Helgi Pétursson formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir fyrrv. formaður LEB og Guðrún Ágústdóttir, eiga fund með biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur og biskupsritara, Sr. Þorvaldi Víðissyni. Fundurinn er haldinn hjá Biskupsstofu að Katrínartúni 4, Reykjavík.
Fundur með Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra
Fundur formanns LEB Helga Péturssonar með Bjarna Benediktssyni, fjármálaráðherra, um áherslur eldra fólks fyrir alþingiskosningar. Þorbjörn Guðmundsson, formaður kjaranefndar LEB og Ingibjörg H. Sverrisdótttir, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík, sitja einnig fundinn. Þau sitja jafnframt bæði í stjórn LEB.
Formaður LEB tekur þátt í heilbrigðisþingi sem verður í beinu streymi
Dagskrá heilbriðisþings sem haldið er 20. ágúst kl. 09.00 - 16.00 er fjölbreytt og áhugaverð. Þar verða m.a. fróðleg erindi, sófaspjall, pallborð ráðherra og endurgjöf þátttakenda. Meðal þátttakaenda er Helgi Pétursson formaður LEB. Heilbrigðisþingið er haldið af heilbrigðisráðherra, svandísi Svavarsdóttur. Þinginu er streymt á vefnum heilbrigdisthing.is HÉR má lesa nánar um heilbrigðisþingið
Fomaður LEB fundar með sendinefnd frá Póllandi
Formaður LEB, Helgi Pétursson, fundar með sendinefnd frá Póllandi um mál eldra fólks á Íslandi og í Póllandi
Undirbúningsfundur vegna Funds fólksins
Formaður LEB, Helgi Pétursson, ásamt stjórnarmanni LEB, Þorbirni Guðmundssyni, og verkefnastjóra LEB, Steinunni Valdimarsdóttur funda með fulltrúum LUF, Landssambandi ungmennafélaga um fyrirhugaða málstofu Samtal kynslóðanna á Fundi fólksins sem haldinn verður í Norræna húsinu 3.-4. september nk. Fundurinn fer fram í aðsetri LEB að Ármúla 6.
Undirbúningsfundur fyrir Fund fólksins