Samráðshópur með Tryggingastofnun ríkisins
Reglulegur samráðsfundur TR með fulltrúum þjónustuþega. Af hálfu LEB sækja fundinn: Helgi Pétursson formaður LEB, Ingibjörg Sverrisdóttir, og Ingólfur Hrólfsson.
Átak um heilsueflingu eldra fólks
Fundinn sitja fulltrúi ÍSÍ, Andri Stefánsson, ásamt Helga Pétursyni formanni og Viðari Eggertssyni skrifstofustjóra LEB. Fundurinn fer fram í aðsetri LEB að Ármúla 6.
Fundur kjaranefndar LEB
Kjaranefnd LEB ásamt nokkrum öðrum kjaranefndum aðildarfélaga LEB halda sameiginlegan fund vegna nýs fjárlagafrumvarps og hvernig væntanleg kjör eldra fólks birtist þar. Fundurinn er haldinn í sal FEB að stangarhyl 4, 110 Reykjavík, kl. 10.00 - 12.00 og jafnframt sem fjarfundur fyrir þá sem eiga ekki heimangengt.
350. Stjórnarfundur LEB
Fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Aðalstjórn LEB: Helgi Pétursson formaður Drífa Sigfúsdóttir Valgerður Sigurðardóttir Ingibjörg Sverrisdóttir Þorbjörn Guðmundsson Varastjórn LEB: Ásgerður Pálsdóttir Ingólfur Hrólfsson Ragnar Jónasson
Kynning á Símavinaverkefni
LEB ásamt Rauða krossinum stendur fyrir átaki að efla Símavini um allt land með stuðningi félagsmálaráðuneytisins. Kynningarfundur haldinn fyrir aðildarfélög LEB á Zoom. Hafdís Rún Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri Símavina, kynnir verkefnið og fer yfir mikilvæga punkta eins og hvernig á að beita virkri hlustun ásamt fleiru.
Formannafundur LEB
Fjarfundur með formönnum og öðrum stjórnarmönnum aðildarfélaga LEB með formanni LEB þar sem farið verður yfir stöðu mála sem varðar eldra fólk. Fundurinn verður í ZOOM og hefst kl. 10.00
Fundur um heilsueflingu aldraðra
Fundur með fulltrúum félagsmálaráðuneytisins haldinn í félagsmálaráðuneytinu Skógarhlíð 6
Fundur með 1819
Formaður LEB, Helgi Pétursson og verkefnastjóri LEB, Steinunn Valdimarsdóttir, eiga fund með Franz Gunnarssyni hjá 1819 vegna innleiðingu á appi fyrir LEB. Fundurinn fer fram í aðsetriLEB að Ármúla 6
Fundur um heilsueflingu aldraðra
Landssamband eldri borgara - LEB heldur fjarfund með nokkrum hagsmunaaðilum um heilsueflingu aldraðra
Formaður LEB fundar með félagsmálaráðherra
Helgi Pétursson formaður LEB á fund með Guðmundi Inga Guðbrandssyni félagsmálaráðherra um ýmis hagsmunamál eldri borgara. Fundurinn fer fram í félagsmálaráðuneytinu, Skógarhlíð 6. Með formanni verð stjórnarmenn LEB, þau Ingibjörg H. Sverrisdóttir og Þorbjörn Guðmundsson, auk Viðars Eggertssonar skrifstofustjóra LEB.