Viðtal við formann LEB á Morgunvaktinni á Rás 1
Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB verður gestur Morgunvaktarinnar á Rás 1 kl. 7.30 til að ræða tillögur um að aflétta starflokakröfu opinberra starfsmanna við 70 ára aldur.
Kynningarmál lifeyrissjóða
Landssamband lífeyrissjóða efnir til fundar um kynningarmál sín á Grand hóteli kl. 12.00 - 13.00. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir og skrifstofustjóri LEB, Viðar Eggertsson, mæta á fundinn
Aukafundur Öldrunarráðs vegna rannsóknarsjóðs
Fulltrúi LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, mætir á fundinn sem haldinn er á Droplaugarstöðum.
Ritnefndarfundur vegna árlegs tímarits LEB
Ritnefnd árlegs tímarits Landssambands eldri borgara heldur fund á skrifstofu félagsins að Sigtúni 42. Ábendingar um efni er hægt að senda á netfangið leb@leb.is Í ritnefnd sitja: Erna Indriðadóttir, ritstjóri, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, […]
Aðventufundur Korpúlfa
Fundurinn verður haldinn að Borgum, Spöngin 43, 112 Reykjavík. Fjölbreytt dagskrá þar sem formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, mun flytja ávarp um Aðventuna og bernskuna.
Formaður flytur hugvekju á Seltjörn
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB, flytur jólahugvekju á hjúkrunarheimilinu Seltjörn á Seltjarnarnesi.
325. stjórnarfundur LEB
Stjórnarfundurinn er haldinn á skrifstofu LEB, Sigtúni 42, 105 Reykjavík. Eftir að fundargerð hefur verið rituð og samþykkt verður hún birt á vef LEB, eins og venjan er. Stjórn LEB: […]
Fundur með heilbrigðisráðherra
Heilbrigðisráðherra hefur boðað formann LEB, Þórunni Sveinbjörnsdóttur, á sinn fund, sem fer fram í heilbrigðisráðuneytinu.
Samráðshópur um velferðartækni
Lokafundur um velferðartækni á vegum Sambands sveitafélaga á höfuðborgarsvæðinu verður haldinn að Hamraborg 9, Kópavogi. Fundinn sækir Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður, fyrir hönd LEB.
326. stjórnarfundur LEB
Stjórnarfundurinn er haldinn á skrifstofu LEB, Sigtúni 42, 105 Reykjavík. Eftir að fundargerð hefur verið rituð og samþykkt verður hún birt á vef LEB, eins og venjan er. Stjórn LEB: […]