Fundur formanns LEB með félagsmálaráðherra
Félagsmálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, hefur kallað formann LEB, Þórunni Sveinbjörnsdóttur, á sinn fund til að ræða málefni eldri borgara.
Undirbúningsfundur vegna sjónvarpsþáttar
Öldrunarráð Íslands og Landssamband eldri borgara standa fyrir ráðstefnunni sem sjónvarpað verður á RÚV-2. Fjölmörg erindi verða flutt. Dagskrá kynnt þegar nær dregur.
Starfslokanámskeið
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, flytur erindi á starfslokanámskeiði Reikningsstofu bankanna
Upptaka á fræðslu- og upplýsingaráðstefnu fyrir eldri borgara
Öldrunarráð og Landssamband eldri borgara standa fyrir ráðstefnunni sem sjónvarpað verður á RÚV-2. Fjölmörg erindi verða flutt. Dagskrá kynnt þegar nær dregur.
Fundur kjaranefndar LEB
Fundurinn er haldinn í bækistöðvum LEB að Ármúla 6. Á fundinum er áframhaldandi umræða um kjaramál eldri borgara og næstu skref. Kjaranefnd er skipuð: Aðalmenn Sigurður Björgvinsson, Hafnarfjörður Haukur Halldórsson, Akureyri Drífa Sigfúsdóttir, Reykjanesbær Jón Ragnar Björnsson, Hella Þorbjörn Guðmundsson, Reykjavík Sigurbjörg Gísladóttir, Reykjavík Varamenn Stefanía Magnúsdóttir, Garðabær Ingibjörg H. Sverrisdóttir, Reykjavík
Fundur með félagsmálaráðherra
Félagsmálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, hefur kallað formann og varaformann LEB, Þórunni Sveinbjörnsdóttur og Hauk Halldórsson, á sinn fund til að ræða málefni eldri borgara.
Formaður LEB í viðtali á Morgunvaktinni á Rás 1
Björn Þór Sigurbjörnsson umsjónarmaður Morgunvaktarinnar á Rás 1 ræðir við Þórunni Sveinbjörnsdóttur formann LEB, mánudag 8. febrúar kl. 7.30
Velferð eldri borgara – Fræðslufundur ÖÍ og LEB á RÚV
Öldrunarráð og Landssamband eldri borgara standa fyrir ráðstefnunni sem sjónvarpað verður á RÚV, þriðjudaginn 9. febrúar kl. 13.00 - 15.00. Smellið hér til að sjá dagskrána
Formaður LEB heimsækir Félag eldri borgara Suðurnesjum
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, og skrifstofustjóri LEB, Viðar Eggertsson, heimsækja Keflavík og eiga fund með stjórn Félags eldri borgara Suðurnesjum.
Samráðsfundur LEB og TR
Fundurinn verður haldinn í bækistöðvum TR, kl. 13.00 – 14.00. Fulltrúar LEB eru: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB, og Ingólfur Hrólfsson, varstjórn LEB. Varamenn LEB: Dagbjört Höskuldsdóttir, ritari LEB og Valgerður Sigurðardóttir, gjaldkeri LEB.