Starfshópur um lífskjör og aðbúnað aldraðra
Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Fulltrúar LEB í starfshópnum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Félags- og barnamálaráðherra skipaði starfshóp í september 2019 um lífskjör og málefni aldraðra. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili ráðherra lokatillögum í síðasta lagi vorið 2021 en starfshópnum er heimilt að skila áfangaskýrslu […]
Samráðshópur með TR
Samráðshópurinn er skipaður fulltrúum LEB, FEB og TR sem er ætlað að fara yfir ýmis mál er varða TR og þjónustu stofnunarinnar.
Fundur með ÍSÍ vegna heilsueflingar eldra fólks
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, ásamt skrifstofustjóra LEB, Viðari Eggertssyni, á fund með starfsfólki ÍSÍ vegna styrks sem LEB og ÍSÍ fengu frá félagsmálaráðuneytinu til að gera átak í heilsueflingu eldra fólks um allt land. Fundurinn verður í bækistöðvum ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Engjavegi 6.
Fundur með forustu ASÍ
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, og Þorbjörn Guðmundsson varamaður í stjórn eiga fund um kjaramál eldri borgara og áherslur þeirra vegna næstu kosninga til Alþingis. Af hálfu ASÍ sitja fundinn forseti ASÍ, Drífa Snædal og Hallur Helgason verkefnastjóri.
Formaður á fund með stjórn Félags eldri borgara í Hafnarfirði
Félag eldri borgara í Hafnarfirði hefur boðið formanni LEB, Þórunni Sveinbjörsdóttur, og skrifstofustjóra LEB, Viðari Eggertssyni, í heimsókn til skrafs og raðagerða.
Fundur velferðarnefndar Alþingis um hagsmunafulltrúa aldraðra
Á fundi velferðarnefndar Alþingis sem haldinn verður fimmtudaginn 29. apríl verður fjallað um tillögu til þingsályktunar um hagsmunafulltrúa aldraðra, 109. mál. Óskað er eftir því eftirfarandi aðilar taki þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað: Kl. 14:30 Öldungaráð Reykjavíkur og Landssamband eldri borgara Kl. 14:50 Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu
Fjarfundur um átakið Hefjum störf
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Vinnumálastofnun halda kynningarfund um átakið Hefjum störf með fulltrúum ýmissa frjálsra félagasamtaka. Fundurinn verður í formi fjarfundar vegna samkomutakmarkanna. Skrifstofustjóri LEB, Viðar Eggertsson, sækir fundinn.
Stjórnarfundur Öldrunarráðs
Fundurinn er haldinn að Mörkinni, Suðurlandsbraut 66, 108 Reykjavík. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, situr fundinn.
LEB fulltrúar funda
Fulltrúar LEB í samstarfshóp um hagi og líðan aldraðra ber saman bækur sínar áður en lokaskýrsla er samþykkt af starfshópnum. Fulltrúar LEB eru Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson
Fundur með fulltrúa prentsmiðju
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, á fund með fulltrúa prentsmiðju vegna prentunar LEB blaðsins 2021 og annarra verkefna.