Fundur með verkefnastjóra Laugardals
Formaður LEB, Helgi Pétursson, á fund með verkefnisstjóra viðburða í fjölskyldugarðinum í Laugardal, Inga Thor Jónssyni, vegna viðburðahátíðar eldra fólks.
Fundur með öldungaráði VR
Öldungaráð Verlsunarfélags Íslands - VR, hefur boðið formanni LEB, Helga Péturssyni, að koma á sinn fund og ræða ýmis hagsmunamál eldra fólk.
Fundur með framkvæmdastjóra ASÍ
Skrifstofustjóri LEB, Viðar Eggertsson, á fund með framkvæmdastjóra ASÍ, Höllu Gunnarsdóttur, í bækistöðvum ASÍ að Guðrúnartúni 1 um sameiginleg málefni.
Gleðilega þjóðhátíð!
Skrifstofa LEB er lokuð þjóðhátíðardaginn. Hægt er að senda tölvupóst á netfangið leb@leb.is Opið aftur föstudag 18. júní
Fulltrúar í starfshópi funda með formanni LEB
Fulltrúar eldri borgara í Starfshópi um lífskjör og aðbúnað eldri borgara, þau Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson, funda með formanni LEB, Helga Péturssyni, um stöðu mála og hvað hafi áunnist í starfshópnum. Fundurinn er fjarfundur.
Fundað um skrifstofuhúsnæði LEB
Formaður LEB, Helgi Pétursson, og skrifstofustjóri LEB, Viðar Eggertsson, eiga fund með fulltrúum Regins fasteignafélags til að ræða enn frekari nýtingu LEB á skrifstofu sinni að Ármúla 6.
Óformlegt formannaspjall á þriðjudegi
Nýr formaður LEB, Helgi Pétursson, hefur bryddað upp á þeirri nýbreytni að halda reglulega formannafundi með aðildarfélögum LEB með fjarfundarbúnaðinum ZOOM. Fyrsti fundurinn er þriðjudaginn 22. júní kl. 10.00
344. Stjórnarfundur LEB
Fundurinn bæði haldinn sem staðfundur í bækistöðvum LEB, Ármúla 6 og sem fjarfundur á Zoom. Aðalstjórn: Helgi Pétursson formaður Drífa Sigfúsdóttir Valgerður Sigurðardóttir Ingibjörg Sverrisdóttir Þorbjörn Guðmundsson Varastjórn: Ásgerður Pálsdóttir Ingólfur Hrólfsson Ragnar Jónasson
Formaður LEB fundar með félagsmálaráðherra
Félags- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, hefur boðið formanni LEB, Helga Péturssyni, að koma á sinn fund og ræða ýmis hagsmunamál eldra fólk. Ásamt Helga sækja fundinn Þorbjörn Guðmundsson og Ingibjörg Sverrisdóttir stjórnarmenn LEB.
Starfsmenn heilbrigðisráðuneytis ræða við LEB
Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að ráðast í heildarúttekt á þjónustuferlum, hugmyndafræði, innihaldi og gæðum heilbrigðisþjónustu fyrir einstaklinga með áfengis- og vímuefnasjúkdóma. Slík úttekt er nauðsynleg til að undirbyggja vinnu við mótun stefnu til framtíðar í þessum málaflokki þar sem settar verða fram heildstæðar tillögur um samþættingu og samvinnu fyrsta-, annars- og þriðja stigs heilbrigðisþjónustu. Samhliða úttektinni […]