Ritnefndarfundur LEB blaðsins 2020
Ritnefnd árlegs tímarits Landssambands eldri borgara heldur fund á skrifstofu félagsins að Sigtúni 42. Ábendingar um efni er hægt að senda á netfangið leb@leb.is Í ritnefnd sitja: Erna Indriðadóttir, ritstjóri, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB, Ingólfur Hrólfsson, Mosfellsbær, Valgerður Sigurðardóttir, gjaldkeri LEB, Hafnarfjörður og Stefanía Magnúsdóttir, Garðabær
Fundur Öldrunarráðs
Á fundinum verður rædd fyrirhuguð ráðstefna Öldrunarráðs sem halda á 18. mars nk. Fulltrúi LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, mætir á fundinn sem haldinn er á Droplaugarstöðum.
Umhverfisráðuneytið veitir LEB styrk vegna umhverfisverkefnisins Umbúðalausir eldri borgarar
Guðmundur Ingi Guðbrandsson veitir LEB styrk vegna verkefnisins Umbúðalausir eldri borgarar. LEB er eitt af fjölmörgum félagasamtökum og stofnunum sem sóttu um styrk vegna umhverfismála. Umhverfisráðherra býður handhöfum verkefnastyrkja ráðuneytisins í kaffi og spjall. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, tekur við styrknum fyrir hönd LEB, ásamt Viðari Eggertssyni skrifstofustjóra LEB.
Formaður LEB í viðtali Í bítinu á Bylgjunni
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir. í viðali í útvarpsþættinum Í bítinu á Bylgjunni um velferðartækni.
Formaður LEB í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir. í viðali í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni um áhrif verkfalls á eldri borgara og fleiri mál varðandi eldri borgara..
Fundur Velferðarnefndar LEB
Fundurinn er haldinn í bækistöðvum LEB að Sigtúni 42. Dagskrá fundarins: Yfirferð yfir ályktun um velferðarmálin frá síðasta aðalfundi - hefur einhverju miðað áfram? Drög að nýrri ályktun rædd. Rætt um verkefni starfshóps Velferðarráðuneytis. Þar eru verkefnin flest á þessu sviði. Nefndina skipa: Dagbjört Höskuldsdóttir, formaður Guðrún Ágústsdóttir Katrín Fjeldsted Ómar Kristinsson Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður […]
Fundur Kjaranefndar LEB & FEB-R
Fundur kjaranefndar LEB & FEB í Reykjavík. Haldinn í bækistöðvum LEB, Sigtúni 42. Nefndarmenn eru: Sigurður Jónsson, Suðurnesjabær, formaður nefndarinnar, Haukur Halldórsson, varaformaður LEB, Akureyri, Stefanía Magnúsdóttir, Garðabær, Sigurbjörg Gísladóttir, Reykjavík og Ólafur Örn Ingólfsson, Reykjavík
327. stjórnarfundur LEB
Stjórnarfundurinn er haldinn á skrifstofu LEB, Sigtúni 42, 105 Reykjavík. Eftir að fundargerð hefur verið rituð og samþykkt verður hún birt á vef LEB, eins og venjan er. Stjórn LEB: Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, Haukur Halldórsson varaformaður, Valgerður Sigurðardóttir gjaldkeri, Dagbjört Höskuldsdóttir ritari og Ellert B. Schram meðstjórnandi. Varastjórn: Drífa Sigfúsdóttir, Ingólfur Hrólfsson og Ólafur Örn […]
Námskeið í tæknilæsi
Félagsmiðstöðin Dalbraut 21-27 heldur námskeið í tæknilæsi fyrir eldri borgara með námsefni sem LEB hefur gefið út. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir afhendir nýja kennslubæklinga fyrir tölvur, iPad og Androit, sem LEB hefur nú gefið út.
Guðrún Ágústsdóttir ráðgjafi LEB í viðtali í Mannlega þættinum á Rás 1
Guðrún Ágústsdóttir ráðgjafi LEB í viðtali í Mannlega þættinum á Rás 1. Guðrún var verkefnastjóri og aðalhöfundur bæklings LEB Velferðartækni - gagnast hún mér?