fbpx

Fundur um átaksverkefnið Heilsuefling eldra fólks

Fundurinn er haldinn í aðsetri LEB og verður þar farið yfir stöðu og framkvæmd á átaksverkefninu Heilsuefling eldra fólks. Fundinn sitja Helgi Pétursson formaður LEB, Valgerður Sigurðardóttir gjaldkeri LEB, Þorbjörn Guðmundsson meðstjórnandi LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir fyrrv. formaður LEB og Viðar Eggertsson skrifstofustjóri LEB. Sérstakur gestur fundarins er Janus Guðlaugsson frá Janusi Heilsueflingu.

Fundur ráðherranefndar um samræmingu mála um velferð vegna stöðunnar í COVID

Forsætisráðherra boðar til fjarfundar með ráðherranefnd um samræmingu mála til að ræða um viðbrögð og áherslur í baráttunni við COVID í bólusettu landi. Til fundarins er boðið fulltrúum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Landssambandi eldri borgara, Geðhjálp, Þroskahjálp, Öryrkjabandalagi Íslands, Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu, Kvennaathvarfsins og Samtökum kvenna af erlendum uppruna. Fulltrúi LEB á fundinum verður […]

Fundur með stjórnendum Hrafnistu

Fundur með framkvæmdastjóra Hrafnistu og stjórnarmönnum Sjómannadagsráðs um húsnæðis- og þjónustumöguleika fyrir eldra fólk. Af hálfu LEB sækja fundinn Helgi Pétursson, Ingibjörg H. Sverrisdóttir og Þorbjörn Guðmundsson. Fundurinn er haldinn í húsnæði Hrafnistu að Sléttuvegi.

Fundur með framkvæmdastjóra Samtaka fjármálafyrirtækja

Fulltrúar LEB, Helgi Pétursson formaður LEB, Þorbjörn Guðmundsson meðstjórnandi LEB og Ingibjörg H. Sverrisdóttir ritari LEB eiga fund með framkvæmdastjóra SFF í höfuðstöðvum þess, Borgartúni 35, um ávöxtunarleiðir á sparnaði eldri borgara.

345. Stjórnarfundur LEB

Fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Aðalstjórn: Helgi Pétursson formaður Drífa Sigfúsdóttir Valgerður Sigurðardóttir Ingibjörg Sverrisdóttir Þorbjörn Guðmundsson Varastjórn: Ásgerður Pálsdóttir Ingólfur Hrólfsson Ragnar Jónasson

Fundur kjaranefndar LEB

Fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Kjaranefnd LEB Þorbjörn Guðmundsson, formaður, Reykjavík Jón Ragnar Björnsson, Hella Jóna Ósk Guðjónsdóttir, Hafnarfjörður Ásgerður Pálsdóttir, Blönduós Sigurbjörg Gísladóttir, Reykjavík

Fundur með Janus – Heilsueflingu

Fulltrúar Janusar - Heilsueflingar halda fund með fulltrúum stjórnar LEB vegna átaksverkefnisins Heilsuefling eldra fólks sem er í bígerð á vegum LEB. Á fundinum munu fulltrúarnir kynna hugmyndafræði Janusar - Heilsueflingar. Fundurinn er haldinn í aðsetri LEB að Ármúla 6 og sækja hann Helgi Pétursson formaður LEB, Þorbjörn Guðmundsson stjórnarmaður LEB og Þórunn Sveinbjörnsdóttir fyrrv. […]

Fundur með ungmennum vegna Samtals kynslóðanna

Formaður LEB, Helgi Pétursson, ásamt stjórnarmanni LEB, Þorbirni Guðmundssyni, og verkefnastjóra LEB, Steinunni Valdimarsdóttur funda með fulltrúum LUF, Landssambandi ungmennafélaga um fyrirhugaða málstofu Samtal kynslóðanna á Fundi fólksins sem haldinn verður í Norræna húsinu 3.-4. september nk. Fundurinn fer fram í aðsetri LEB að Ármúla 6.