Hjálpartæki – til hvers?
Málþing haldið af Öryrkjabandalagi Íslands á Grand Hóteli, miðvikudaginn 9. október, kl. 15.00-17.00. Starfshópur heilbrigðisráðherra um fyrirkomulag varðandi hjálpartæki hefur lagt fram tillögur til ráðherra í væntanlegri skýrslu. Fulltrúi LEB í starfshópnum var Baldur Þór Baldvinsson. Á málþingi málefnahóps ÖBÍ um heilbrigðismál verður skýrslan kynnt og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir frá áformum stjórnvalda í hjálpartækjamálum. Rit- […]
Framtíðarþing um farsæla öldrun
Þingið verður haldið í Valaskjálf á Egilsstöðum. Allir velkomnir - boðið upp á veitingar. Að þinginu standa Vopnafjörður, Seyðisfjörður, Fljótsdalshreppur, Fljótsdalshérað, Djúpivogur.is, Fjarðabyggð, Borgarfjörður eystri, LEB - Landssamband eldri borgara, Öldrunarráð Íslands og Heilbrigðisráðuneytið.
Nemendur Félagsráðgjafadeild HÍ heimsækja LEB
Nemendur Félagsráðgjafadeildar HÍ á öðru ári í námskeiðinu Félagsmálalöggjöf, framkvæmd og beiting, fræðast um málefni eldri borgara og starfsemi hinna ýmsu félaga eldri borgara víða um land, en þessi félög mynda síðan Landssamband eldri borgara. Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB, mun taka á móti þeim á skrifstofunni og annast fræðsluna.
Starfshópur um lífskjör og aðbúnað aldraðra
Fundur hjá starfshópnum að Jöfri, Skógarhlíð 6, Reykjavík. Fulltrúar LEB á fundinum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson.
Fundur um velferðartækni. Samráðshópur Samtaka sveitafélaga á höfuðborgarsvæðinu
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, sækir fundinn. Fundurinn er haldinn að Fannborg 6, Kópavogi. Efni: Hvað höfum við lært, breytingastjórnun og innleiðing á velferðartækni hjá sveitarfélögum? Fyrirlesarar frá Danmörku, Finnlandi og velferðartæknismiðju Reykjavíkurborgar.
Samstarfsnefnd félagsmálaráðuneytis um málefni aldraðara
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB sækir fundinn. Á fundinum verður m.a. á dagskrá: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og áframhaldandi umræður um áherslur nefndarinnar.
Stjórnarfundur LEB nr. 323
Fundurinn er haldinn á skrifstofu LEB, Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Samráðsfundur Tryggingarstofnunar og LEB
Fundurinn haldinn í húsnæði TR að Hlíðarsmára 11, Kópavogi. Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður sækir fundinn f.h. LEB. Aðrir fulltrúar LEB eru: Valgerður Sigurðardóttir, gjaldkeri LEB, Hrafn Magnússon og Ingólfur Hrólfsson.
Eru fasteignir féþúfa? – Morgunverðarfundur 25. október á Grand hóteli.
LEB -Landssamband eldri borgara, Félag atvinnurekenda og Húseigendafélagið efna til morgunverðarfundar á Grand Hóteli Reykjavík föstudaginn 25. október kl. 8-10, undir yfirskriftinni „Eru fasteignir féþúfa?“ Umræðuefnið er álagning fasteignagjalda á einstaklinga og fyrirtæki og hvernig þessi skattheimta hefur á undanförnum árum vaxið langt umfram allar eðlilegar viðmiðanir. Sífellt þyngri skattbyrði hefur áhrif á félagsmenn í öllum þessum samtökum. […]
Fundur NOP, norrænna félaga eldri borgara, haldinn í Finnlandi
NPO er samráðsvettvangur norræna félaga eldri borgara í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Íslandi og Færeyjum. Fundað er að jafnaði tvisvar á ári. Að þessu sinni verður fundurinn í Finnlandi. Fyrir hönd Íslands sækja fundinn Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB og Haukur Halldórsson, varaformaður LEB.