Fundur með formanni BSRB
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, á fund með formanni BSRB, Sonju Ýr Þorbergsdóttur, um kjaragliðnun sem hefur orðið á milli eftirlaunafólks og þeirra sem eru lægst launaðir á vinnumarkaði, eftirlaunafólki í hag, og hægt sé að gera í stöðunni. Fundurinn fer framí húsakynnum BSRB, Grettisgötu 89.
Fundur með formanni Velferðarráðs Reykjavíkurborgar
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, á fund með formanni Velferðarráðs Reykjavíkurborgar, Heiðu Björg Hilmisdóttur, um málefni eldri borgara.
Samstarfssamningur við MS
MS - Mjólkursamsalan mun gerast hollvinur LEB og verður skrifað undir samninginn í húsakynnum MS að Bitruhási 1.
331. stjórnarfundur LEB
Stjórnarfundurinn er haldinn í aðsetri LEB að Sigtúni 42. Eftir að fundargerð hefur verið rituð og samþykkt á næsta stjórnarfundi á eftir verður hún birt á vef LEB, eins og venjan er. Stjórn LEB: Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, Haukur Halldórsson varaformaður, Valgerður Sigurðardóttir gjaldkeri, Dagbjört Höskuldsdóttir ritari og Ellert B. Schram meðstjórnandi. Varastjórn: Drífa Sigfúsdóttir, Ingólfur […]
Formaður LEB í Bítinu á Bylgjunni
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB, verður gestur Heimis og Gulla í morgunþætti Bylgjunnar, Í bítinu.
Samráðsfundur LEB og Tryggingastofnunar
Fundurinn verður haldinn í bækistöðvum TR, kl. 11.00 – 12.00. Fulltrúar LEB eru: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB, Valgerður Sigurðardóttir, gjaldkeri LEB og Ingólfur Hrólfsson, varstjórn LEB. Varamenn LEB: Dagbjört Höskuldsdóttir, ritari LEB og Hrafn Magnússon og Ingólfur Hrólfsson, Mosfellsbær
Fundur Velferðarnefndar LEB
Fundurinn er haldinn í bækistöðvum LEB að Sigtúni 42. Nefndina skipa: Dagbjört Höskuldsdóttir, formaður Guðrún Ágústsdóttir Katrín Fjeldsted Ómar Kristinsson Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB, mætir einnig á fundinn
Fundur kjaranefndar LEB & FEB-R
Fundur kjaranefndar LEB & FEB í Reykjavík. Haldinn í bækistöðvum LEB, Sigtúni 42. Nefndarmenn eru: Sigurður Jónsson, Suðurnesjabær, formaður nefndarinnar, Haukur Halldórsson, varaformaður LEB, Akureyri, Stefanía Magnúsdóttir, Garðabær, Sigurbjörg Gísladóttir, Reykjavík og Ólafur Örn Ingólfsson, Reykjavík
Starfshópur um lífskjör og aðbúnað aldraðra
Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fjarfundur verður hjá starfshópnum að þessu sinni. Fulltrúar LEB á fundinum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Félags- og barnamálaráðherra skipaði starfshóp í september 2019 um lífskjör og málefni aldraðra. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili ráðherra lokatillögum í síðasta lagi vorið 2021 en starfshópnum er heimilt að […]
Aðalfundur Almannaheilla, samtaka þriðja geirans
Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 9. júní n.k., kl. 16.00, að Skógarhlíð 8, Reykjavík. Upplýsingar um Almannaheill