Fundur vegna Umbúðalausir eldri borgarar
LEB er með í undirbúningi verkefnið Umbúðalausir eldri borgarar sem styrkt er af umhverfisráðuneytinu. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, og skrifstofustjóri LEB, Viðar Eggertsson, funda með Kolbrúnu Halldórsdóttur leikstjóra vegna verkefnisins.
Vinnuhópur um hagi og líðan eldra fólks
Vinnuhópurinn mætir á fjarfund vegna kórónuveirunnar. Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB situr í vinnuhópnum.
Aðalfundur Öldrunarráðs Íslands
Fundurinn verður fjarfundur og verður notast við fjarfundarbúnað Webex. Dagskrá: 1. Hefðbundin aðalfundarstörf samkv. lögum ráðsins 2. Erindi 3. Afhending viðurkenningar Öldrunarráðs 4. Önnur mál Athugið að allir eru velkomnir á aðalfundinn. Tilkynna þarf þátttöku á netfangið oldrunarrad@oldrunarrad.is
Samstarfsnefnd um málefni aldraðra
Fundurinn verður haldinn sem fjarfundur. Fulltrúi LEB á fundinum er Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður.
Fundur með Samgöngustofu
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, fundar með Hildi Guðjónsdóttur hjá Samgöngustofu ýmsa fleti á akstri á efri árum á fjarfundi.
Fundur hjá starfshópi um lífskjör og aðbúnað aldraðra
Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fundurinn er haldinn sem fjarfundur að þessu sinni til að mæta kröfum um sóttvarnir. Fulltrúar LEB í starfshópnum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Félags- og barnamálaráðherra skipaði starfshóp í september 2019 um lífskjör og málefni aldraðra. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili ráðherra lokatillögum í síðasta lagi […]
Formaður LEB í Mannlega þættinum á Rás 1
Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB situr fyrir svörum sem „sérfræðingur vikunnar" í Mannlega þættinum á Rás 1 um ýmis málefni eldra fólks. Fastur liður á fimmtudögum í Mannlega þættinum á Rás 1 er „sérfræðingur vikunnar“. Fimmtudaginn 22. október verður sérfræðingurinn Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB – Landssambands eldri borgara. Hlustendur geta beint spurningum til hennar með því […]
Ráðgjafanefnd Landspítala
Fundur ráðgjafanefndar Landspítala verður fimmtudaginn 22. október kl. 14.00 - 16.00. Meðal aðalfulltrúa í nefndinni er formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir. Ráðgjafarnefnd Ráðgjafarnefnd Landspítala starfar í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu. Í nefndinni eru níu aðalmenn og jafnmargir til vara. Nefndin skal vera forstjóra og framkvæmdastjórn „til ráðgjafar og álits um þjónustu, starfsemi og rekstur spítalans […]
Árlegur samráðsfundur LEB og Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundurinn verður haldinn sem fjarfundur. Fulltrúar LEB á fundinum verða Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB, Valgerður Sigurðardóttir gjaldkeri LEB og formaður FEB í Hafnarfirði, Ingólfur Hrólfsson formaður FEB í Mosfellsbæ og varamaður í stjórn LEB og Guðfinna Ólafsdóttir formaður FEB á Selfossi og varamaður í stjórn LEB.
Fundur starfshóps um hagi og líðan eldri borgara
Fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Fulltrúi LEB á fundinum er Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB