Fjármál við starfslok
Opinn fundur í Silfurbergi í Hörpu um það sem mikilvægast er að hafa í huga við starfslok. Fundurinn er haldinn af Íslandsbanka. Erindi flytur Björn Berg Gunnarsson, Íslandsbanka. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, situr fyrir svörum ásamt Sigríði Lillý Baldursdóttur forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins. Ókeypis aðgangur! En það þarf að skrá sig á viðburðinn. Skráning hér
25 ára afmæli FEB Ísafirði
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, sérstakur gestur afmælishátíðar.
Fundur um velferðartækni. Samráðshópur Samtaka sveitafélaga á höfuðborgarsvæðinu
Opinn fundur. Skrifstofustjóri LEB, Viðar Eggertsson, sækir fundinn. Fundurinn er haldinn að Fannborg 6, Kópavogi. Páll Tómas Finnson ráðgjafi í Danmörku er fyrirlesari á fundinum að þessu sinni og mun kafa í nýjustu upplýsingar um eftirfarandi þætti: - Mannfjöldaþróun á Íslandi og í Evrópu - Markaðurinn fyrir velferðartækni - Innviðir og tæknilæsi - Fjármögnun - […]
Fundur með FEB Hólmavík
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, á fund með félögum í FEB á Hólmavík.
Samráðshópur um fasteignagjöld
Hópurinn fundar til að ræða fasteignagjöld og hvernig megi bregðast við svo þau séu ekki íþyngjandi fyrir ungt fólk og eldri borgara. Í hópnum eru fulltrúar Húseigendafélagsins, ASÍ, Samtaka atvinnulífsins og Landssambands eldri borgara. Þórunn sveinbjörnsdóttir formaður LEB er okkar fulltrúi, til vara Ólafur Örn Ingólfsson, varamaður í stjórn LEB.
Borgarafundur um málefni eldri borgara í Kastljósi RÚV
Bein útsending frá borgarafundi um málefni eldri borgara. Útsendingin verður þriðjudaginn 1. október og hefst kl. 19.40 og lýkur kl. 21.00. Meðal þátttakanda er Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB. Umsjón: Einar Þorsteinsson og Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir.
Vinnudagur Öldrunarráðs
Heill dagur með ýmsum gestum sem flytja erindi og fyrirlestra. Öldrunarráð skipuleggur starf vetrarins. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, er fulltrúi landssambandsins.
Samráðshópur um fasteignagjöld
Hópurinn fundar til að ræða fasteignagjöld og hvernig megi bregðast við svo þau séu ekki íþyngjandi fyrir ungt fólk og eldri borgara. Í hópnum eru fulltrúar Húseigendafélagsins, ASÍ, Samtaka atvinnulífsins og Landssambands eldri borgara. Þórunn sveinbjörnsdóttir formaður LEB er okkar fulltrúi, til vara Ólafur Örn Ingólfsson, varamaður í stjórn LEB.
Starfslokanámskeið fyrir VR
Takmarkalaust líf ehf heldur starfslokanámskeið. Meðal fyrirlesara er formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir. Námskeiðið er haldið í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7, 103 Reykjavík. Aðrir fyrirlesarar eru: Ásta Arnardóttir, Björn Berg Gunnarsson og Ásgeir Jónsson.
Samráðsfundur um norræna framtíðarsýn í loftslagsmálum
Samráðsfundur um framtíðarsýnina verður haldinn þann 9. október nk. kl. 13:-15 í Norræna húsinu. Þar gefst fulltrúum félagasamtaka og fulltrúum úr atvinnulífinu, tækifæri til að koma sínum skoðunum á framfæri um hverjar áherslur norrænnar samvinnu ættu að vera þegar kemur að loftslagsmálum, í ljósi hinnar nýju framtíðarsýnar. Dagskrá fundarins: Kynning á framtíðarsýninni – ferlið og […]