Fundur um málefni eldri nýbúa
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, á fund í félagsmálaráðuneytinu um málefni eldri nýbúa. Vegna nýrra laga sem munu taka gildi 1. nóvember. Í þeim kveður á stuðning við eldra fólk með skerta búsetu á Íslandi og hefur ekki notið ellilífeyris. Brýnt er að hafa upp á þessu fólki svo hægt sé að kynna þeim réttindi sín.
Fundur Öldrunarráðs
Fulltrúi LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, mætir á fundinn sem haldinn er á Droplaugarstöðum.
Formaður LEB gestur Mannlega þáttarins á Rás 1
Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB og Guðrún Ágústsdóttir ráðgjafi hjá LEB verða gestir Mannlega þáttarins kl. 11.03 á Rás 1, þriðjudaginn 15. september. Tilefnið er málþing LEB í samvinnu við Farsæla öldrun - Þekkingarmiðstöð. Málþingið ber heitið Veistu, ef þú vin átt og fjallar um einmanaleika og félagslega einangrun eldra fólks og hvað sé til ráða. […]
Fundur í félagsmálaráðuneytinu
Fundur vegna undirbúningsvinnu á nýrri skýrslu Greining á högum og líðan alraðra á Íslandi sem væntanlega lítur dagsins ljós snemma árs 2021. formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, sækir fundinn.
Formaður LEB gestur í fréttaskýringaþættinum 21 á Hringbraut
Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB og Guðrún Ágústsdóttir ráðgjafi hjá LEB verða gestir Lindu Blöndal í fréttaskýringaþættinum 21 á Hringbraut, kl. 21.00 þriðjudaginn 15. september. Tilefnið er málþing LEB í samvinnu við Farsæla öldrun – Þekkingarmiðstöð. Málþingið ber heitið Veistu, ef þú vin átt og fjallar um einmanaleika og félagslega einangrun eldra fólks og hvað sé […]
Umræður um hjálpartæki
ÖBÍ og LEB eiga fund í heilbrigðismálaráðuneytinu um stöðu skýrslu hjálpartækjamála og aðgerðaráætlun vegna hennar. Þórunn Sveinbjörnsdóttir sækir fundinn f. h. LEB
Starfshópur um lífskjör og aðbúnað aldraðra
Nefndin er á forræði félagsmálaráðherra. Að þessu sinni er starfað í starfshópum um afmörkuð mál: Starfshópur um félagslega þjónustu fundar kl. 13.00 - 14.00. Þar sitja m.a. Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB og Haukur Halldórsson varaformaður LEB. Starfshópur um heilbrigðismál fundar kl. 14.00 - 15.00. Þar situr m.a. Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB.
VEISTU, EF ÞÚ VIN ÁTT – Málþing um einmanaleika og félagslega einangrun eldra fólks
LEB ásamt Farsælli öldrun - þekkingarmiðstöð vinnur að undirbúningi málþings um einmanaleika og félagslega einangrun eldra fólks og hvað sé til ráða, Veistu, ef þú vin átt. Málþingið mun fara fram á Hótel Hilton Nordica fimmtudaginn 17. september kl. 13.00 - 17.00. Nánari upplýsingar HÉR Ókeypis aðgangur, en nauðsynlegt er að skrá sig. Málþinginu verður […]
Fundur starfshóps um lífskjör og aðbúnað aldraðra
Fundur hjá starfshóp um lífskjör og aðbúnað aldraðra. Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fundur hjá undirhópi um félagsþjónustu Fundurinn er haldnirnn sem fjarfundir að þessu sinni til að mæta kröfum um sóttvarnir. Fulltrúar LEB í starfshópnum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Félags- og barnamálaráðherra skipaði starfshóp í september 2019 um lífskjör og málefni aldraðra. […]
Fundur samstarfsnefndar um málefni aldraðra
Fundurinn er haldinn að Skógarhlíð 6. Fulltrúi LEB er formaðurinn, Þórunn Sveinbjörnsdóttir. Stjórnin er þannig skipuð: Aðalmenn Valgerður Sverrisdóttir, án tilnefningar, formaður Birna Sigurðardóttir, án tilnefningar Aðalsteinn Sigfússon, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga Þórunn Sveinbjörnsdóttir, tiln. af Landssambandi eldri borgara Jórunn Frímannsdóttir, tiln. af Öldrunarráði Íslands. Varamenn Þorvaldur Jóhannsson, án tilnefningar, varaformaður Jóna Guðný Eyjólfsdóttir, […]