Félagsmalaráðherra fundar með formanni LEB
Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra heldur fjarfund með formanni LEB Þórunni Sveinbjörnsdóttur, miðvikudaginn 16. desember kl. 10.30 þar sem fjallað verður um málefni eldri borgara.
Skrifstofan í jólafríi 23. desember – 3. janúar
Ármúli 6, 108 Reykjavík Ármúli 6, Reykjavík, IcelandSkrifstofan okkar verður í jólafríi (að mestu) frá miðvikudeginum 23. desember til og með sunnudeginum 3. janúar. Þó verðum við í netsambandi og hægt að senda okkur erindi á netfangið leb@leb.is og við svörum eftir bestu getu eins og endranær. Á nýju ári, mánudaginn 4. janúar, opnum við aftur og þá á nýjum stað. Við […]
Formaður LEB á fund með umhverfisráðherra
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, á fund með umhverfisráðherra. Þar mun Þórunn afhenda Guðmundi Inga Guðbrandssyni umhverfisráðherra fjölnota tauburðarpoka sem LEB hefur látið framleiða. Athöfnin er formlegt upphaf af umhverfisátaki LEB, Umbúðalausir eldri borgarar, og jafnframt tilefni af því að 1. janúar gengu í gildi ný lög sem banna að dreifa eða selja plastburðarpoka.
Fundur starfshóps um lífskjör og aðbúnað aldraðra
Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fundurinn er haldinn sem fjarfundur að þessu sinni. Fulltrúar LEB í starfshópnum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Félags- og barnamálaráðherra skipaði starfshóp í september 2019 um lífskjör og málefni aldraðra. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili ráðherra lokatillögum í síðasta lagi vorið 2021 en starfshópnum er heimilt […]
Fundur Öldrunarráðs
Sérstakur fjarfundur Öldrunarráðs með starfsmönnum RÚV vegna fyrirhugaðs sjónvarpsþáttar um málefni eldri borgara. Formaður LEB, Þórunn sveinbjörnsdóttir situr fundinn.
Fundur ritnefndar LEB-blaðsins
Ritnefnd kemur saman til að undirbúa næsta tölublað LEB-blaðsins sem mun koma út í tengslum við árlegan Landsfund LEB í vor. Ritstjórn LEB blaðsins: Erna Indriðadóttir, ritstjóri Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB Ingólfur Hrólfsson, Mosfellsbær Valgerður Sigurðardóttir, gjaldkeri LEB, Hafnarfjörður Stefanía Magnúsdóttir, Garðabær Viðar Eggertsson, skrifstofustjóri LEB Guðrún Ágústsdóttir, ráðgjafi LEB
Fundur starfshóps um aðbúnað og lífskjör aldraðra
Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Fulltrúar LEB í starfshópnum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Félags- og barnamálaráðherra skipaði starfshóp í september 2019 um lífskjör og málefni aldraðra. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili ráðherra lokatillögum í síðasta lagi vorið 2021 en starfshópnum er heimilt að skila áfangaskýrslu […]
Stjórnarfundur Öldrunarráðs
Fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, situr fundinn.
Fundur Öldrunarráðs
Sérstakur fjarfundur Öldrunarráðs vegna dagskrár fyrirhugaðs sjónvarpsþáttar um málefni eldri borgara. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir situr fundinn.
Fundur Öldrunarráðs með RÚV
Sérstakur fjarfundur Öldrunarráðs með starfsmönnum RÚV vegna fyrirhugaðs sjónvarpsþáttar um málefni eldri borgara. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir situr fundinn.