Fundur um málefni eldri innflyjenda og félagslega einangrun
Fyrsti fundur um verkefnið Félagsstarf eldra fólks - þátttaka innflytjenda í bækistöð LEB að Sigtúni 42. Fundinn sitja: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Edda Ólafsdóttir, Guðrún Ágústsdóttir og Barbara Jean Kristvinsson.
Fundur um evrópskt samstarf um velferðartækni
Símafundur haldinn í samstarfshópnum. Íslenskir aðilar hittast hjá Reykjavíkurborg, Borgartún 12 - 14. Fulltrúi LEB er Þórunn Sveinbjörnsdóttir.
Fundur með Rauða krossinn um hjálparsímann.
Fundur með umsjónarmanni hjálparsíma hjá Rauðakrossinum. Fulltrúar LEB: Þórunn Sveinbjörnsdóttir og Guðrún Ágústsdóttir
Ritnefndarfundur LEB blaðsins 2020
Ritnefnd árlegs tímarits Landssambands eldri borgara heldur fund á skrifstofu félagsins að Sigtúni 42. Ábendingar um efni er hægt að senda á netfangið leb@leb.is Í ritnefnd sitja: Erna Indriðadóttir, ritstjóri, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB, Ingólfur Hrólfsson, Mosfellsbær, Valgerður Sigurðardóttir, gjaldkeri LEB, Hafnarfjörður og Stefanía Magnúsdóttir, Garðabær
Starfslokanámskeið hjá Eimskip
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, er meðal fyrirlesara á námskeiði sem Takmarkalaust líf ehf heldur hjá Eimskip. Þar fjallar hún um innhaldsríkt líf eftir starfslok.
Hvernig líður eldri borgurum?
Björn Þór Sigurbjörnsson umsjónarmaður á Morgunvaktinni á Rás 1 ræðir við formann LEB, Þórunni Sveinbjörnsdóttur, um líðan eldra fólks nú á tímum COVID-19 veirunnar. Viðtalið verður kl. 7.30
Starfshópur um lífskjör og aðbúnað aldraðra
Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fundur hjá starfshópnum að Jöfri, Skógarhlíð 6 (1. hæð), Reykjavík. Fulltrúar LEB á fundinum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson.
Formaður LEB á daglegum blaðamannafundi vegna COVID-19
Daglegur blaðamannafundur vegna kórónuveirunnar hefst í Skógarhlíð klukkan 14.00, laugardag 14. mars. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Alma D. Möller landlæknir fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19, staðfestra smita hér á landi, aðgerða stjórnvalda og fleira. Á fundinum verður síðan sérstaklega fjallað um málefni eldra fólks og hvernig þau þurfa að bregðast við. Gestur á fundinum […]
Formaður LEB gestur Kastljóss
Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB verður gestur Kastjóss í kvöld, mánudag 16. mars. Þar mun hún ræða málefni eldri borgara á tímum COVID-19 veiru og hvað hægt er að gera til að rjúfa einmanaleika þeirra og félagslega einangrun, máltíðir o.fl.
Stöðumat við þjónustu eldri borgara á tímum kórónaveiru
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar heldur fund um stöðumat á þjónustu við eldri borgara á tímum kórónaveiru með formanni LEB, Þórunni Sveinbjörnsdóttur