Fundur stjórnarmanna LEB með félagsmálaráðherra
Þau Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB, Haukur Halldórsson varaformaður og Ingibjörg H. Sverrisdóttir meðstjórnandi, eiga fund með félagsmálaráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni, til að ræða um ýmis brýn málefni er varða eldri borgara. Fundurinn verður í félagsmálaráðuneytinu mánudaginn 5. október kl. 11.00 - 11.30
Samráðsfundur vegna símavina
LEB hefur átt í samstarfi við bæði Velferðarsvið Reykjavíkur og Rauða krossinn vegna eflingar símavina sem sinna öldruðum til að rjúfa einangrun og einmanaleika. Fulltrúar þessara aðila ásamt fulltrúa frá FEB í Reykjavík funda um að koma þessu verkefni alfarið á verksvið Rauða Krossins á fjarfundi. Fulltrúi LEB er Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður.
Stjórnarfundur Öldrunarráðs
Fulltrúi LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, mætir á fundinn sem haldinn er á Droplaugarstöðum.
Fundur um málefni eldri innflytjenda
Verkefnið er m.a. að kortleggja stöðu eldra fólks af erlendum uppruna sem hefur flust til landsins á seinni árum. Fundurinn verður fjarfundur að þessu sinni. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, situr fundinn. Auk hennar: Þórhildur Guðrún Egilsdóttir, Barbara Jean Kristvinsson, Edda Ólafsdóttir, Tatjana Latinovic, Tryggvi Þórhallson og Birna Róbertsdóttir.
Fundur um hátíð eldri borgara
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, og skrifstofustjóri LEB, Viðar Eggertsson, funda með Inga Thor Jónssyni verkefnastjóra viðburða í Laugardalnum um mögulega hátíð eldri borgara þar næsta vor.
Fundur með nemendum félags- og tómstundafræði
Fundur með nemendum félags- og tómstundafræði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður, segir frá starfsemi LEB og situr fyrir svörum nemenda á fjarfundi.
Fundur vegna Umbúðalausir eldri borgarar
LEB er með í undirbúningi verkefnið Umbúðalausir eldri borgarar sem styrkt er af umhverfisráðuneytinu. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, og skrifstofustjóri LEB, Viðar Eggertsson, funda með Kolbrúnu Halldórsdóttur leikstjóra vegna verkefnisins.
Vinnuhópur um hagi og líðan eldra fólks
Vinnuhópurinn mætir á fjarfund vegna kórónuveirunnar. Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB situr í vinnuhópnum.
Aðalfundur Öldrunarráðs Íslands
Fundurinn verður fjarfundur og verður notast við fjarfundarbúnað Webex. Dagskrá: 1. Hefðbundin aðalfundarstörf samkv. lögum ráðsins 2. Erindi 3. Afhending viðurkenningar Öldrunarráðs 4. Önnur mál Athugið að allir eru velkomnir á aðalfundinn. Tilkynna þarf þátttöku á netfangið oldrunarrad@oldrunarrad.is
Samstarfsnefnd um málefni aldraðra
Fundurinn verður haldinn sem fjarfundur. Fulltrúi LEB á fundinum er Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður.