Formaður LEB gestur í fréttaskýringaþættinum 21 á Hringbraut
Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB og Guðrún Ágústsdóttir ráðgjafi hjá LEB verða gestir Lindu Blöndal í fréttaskýringaþættinum 21 á Hringbraut, kl. 21.00 þriðjudaginn 15. september. Tilefnið er málþing LEB í samvinnu við Farsæla öldrun – Þekkingarmiðstöð. Málþingið ber heitið Veistu, ef þú vin átt og fjallar um einmanaleika og félagslega einangrun eldra fólks og hvað sé […]
Umræður um hjálpartæki
ÖBÍ og LEB eiga fund í heilbrigðismálaráðuneytinu um stöðu skýrslu hjálpartækjamála og aðgerðaráætlun vegna hennar. Þórunn Sveinbjörnsdóttir sækir fundinn f. h. LEB
Starfshópur um lífskjör og aðbúnað aldraðra
Nefndin er á forræði félagsmálaráðherra. Að þessu sinni er starfað í starfshópum um afmörkuð mál: Starfshópur um félagslega þjónustu fundar kl. 13.00 - 14.00. Þar sitja m.a. Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB og Haukur Halldórsson varaformaður LEB. Starfshópur um heilbrigðismál fundar kl. 14.00 - 15.00. Þar situr m.a. Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB.
VEISTU, EF ÞÚ VIN ÁTT – Málþing um einmanaleika og félagslega einangrun eldra fólks
LEB ásamt Farsælli öldrun - þekkingarmiðstöð vinnur að undirbúningi málþings um einmanaleika og félagslega einangrun eldra fólks og hvað sé til ráða, Veistu, ef þú vin átt. Málþingið mun fara fram á Hótel Hilton Nordica fimmtudaginn 17. september kl. 13.00 - 17.00. Nánari upplýsingar HÉR Ókeypis aðgangur, en nauðsynlegt er að skrá sig. Málþinginu verður […]
Fundur starfshóps um lífskjör og aðbúnað aldraðra
Fundur hjá starfshóp um lífskjör og aðbúnað aldraðra. Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fundur hjá undirhópi um félagsþjónustu Fundurinn er haldnirnn sem fjarfundir að þessu sinni til að mæta kröfum um sóttvarnir. Fulltrúar LEB í starfshópnum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Félags- og barnamálaráðherra skipaði starfshóp í september 2019 um lífskjör og málefni aldraðra. […]
Fundur samstarfsnefndar um málefni aldraðra
Fundurinn er haldinn að Skógarhlíð 6. Fulltrúi LEB er formaðurinn, Þórunn Sveinbjörnsdóttir. Stjórnin er þannig skipuð: Aðalmenn Valgerður Sverrisdóttir, án tilnefningar, formaður Birna Sigurðardóttir, án tilnefningar Aðalsteinn Sigfússon, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga Þórunn Sveinbjörnsdóttir, tiln. af Landssambandi eldri borgara Jórunn Frímannsdóttir, tiln. af Öldrunarráði Íslands. Varamenn Þorvaldur Jóhannsson, án tilnefningar, varaformaður Jóna Guðný Eyjólfsdóttir, […]
334. stjórnarfundur LEB – vinnufundur
Stjórnarfundurinn er haldinn í aðsetri LEB að sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Vinnuhópur um hagi og líðan eldra fólks.
Vinnuhópurinn mætir á fjarfund vegna kórónuveirunnar. Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB situr í vinnuhópnum.
Fundur um málefni eldri innflytjenda
LEB hefur beitt sér fyrir málefnum eldri innflytjendenda. Fundinn sitja Þórhildur Egilsdóttir, deildarstjóri öldrunar- og húsnæðismála á velferðarsviði Reykjavíkurborgar, Guðrún Ágústasdóttir ráðgjafi og Þorunn Sveinbjörnsdóttir´formaður LEB.
Fundur Öldrunarráðs
Undirbúningsfundur fyrir væntanlegan aðalfund 8. október. funurinn er haldinn sem fjarfundur. Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB verður á fundinum