350. Stjórnarfundur LEB
Fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Aðalstjórn LEB: Helgi Pétursson formaður Drífa Sigfúsdóttir Valgerður Sigurðardóttir Ingibjörg Sverrisdóttir Þorbjörn Guðmundsson Varastjórn LEB: Ásgerður Pálsdóttir Ingólfur Hrólfsson Ragnar Jónasson
Kynning á Símavinaverkefni
LEB ásamt Rauða krossinum stendur fyrir átaki að efla Símavini um allt land með stuðningi félagsmálaráðuneytisins. Kynningarfundur haldinn fyrir aðildarfélög LEB á Zoom. Hafdís Rún Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri Símavina, kynnir verkefnið og fer yfir mikilvæga punkta eins og hvernig á að beita virkri hlustun ásamt fleiru.
Formannafundur LEB
Fjarfundur með formönnum og öðrum stjórnarmönnum aðildarfélaga LEB með formanni LEB þar sem farið verður yfir stöðu mála sem varðar eldra fólk. Fundurinn verður í ZOOM og hefst kl. 10.00
Fundur um heilsueflingu aldraðra
Fundur með fulltrúum félagsmálaráðuneytisins haldinn í félagsmálaráðuneytinu Skógarhlíð 6
Fundur með 1819
Formaður LEB, Helgi Pétursson og verkefnastjóri LEB, Steinunn Valdimarsdóttir, eiga fund með Franz Gunnarssyni hjá 1819 vegna innleiðingu á appi fyrir LEB. Fundurinn fer fram í aðsetriLEB að Ármúla 6
Fundur um heilsueflingu aldraðra
Landssamband eldri borgara - LEB heldur fjarfund með nokkrum hagsmunaaðilum um heilsueflingu aldraðra
Formaður LEB fundar með félagsmálaráðherra
Helgi Pétursson formaður LEB á fund með Guðmundi Inga Guðbrandssyni félagsmálaráðherra um ýmis hagsmunamál eldri borgara. Fundurinn fer fram í félagsmálaráðuneytinu, Skógarhlíð 6. Með formanni verð stjórnarmenn LEB, þau Ingibjörg H. Sverrisdóttir og Þorbjörn Guðmundsson, auk Viðars Eggertssonar skrifstofustjóra LEB.
Fundur um heilsueflingu aldraðra
Fulltrúar félagsmálaráðuneytisins, Birna Sigurðardóttir og Erna Kristín Blöndal, halda fund með formanni LEB, Helga Péturssyni, og fulltrúa Janus Heilsuefling, Janusi Guðlaugssyni, um átak í heilsueflingu aldrðra.
Skrifstofa LEB lokuð yfir hátíðarnar
Skrifstofa LEB verður lokuð yfir hátíðirnar frá Þorláksmessu 23. desember til sunnudagsins 2. janúar. Svarað verður þó í síma 567 7111 virka daga kl. 09.00 - 12.000 og erindum sem berast með tölvupósti í netfangið leb@leb.is Opnum aftur mánudaginn 3. janúar kl. 09.00 Gleðilega hátíð!
351. Stjórnarfundur LEB
Fundurinn er haldinn sem fjarfundur. Aðalstjórn LEB: Helgi Pétursson formaður Drífa Sigfúsdóttir Valgerður Sigurðardóttir Ingibjörg Sverrisdóttir Þorbjörn Guðmundsson Varastjórn LEB: Ásgerður Pálsdóttir Ingólfur Hrólfsson Ragnar Jónasson