Fundur Öldrunarráðs
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, sækir fundinn. Á dagskrá að þessu sinni er 1) Styrkveiting í desember, auglýsing og kynning. 2) Væntanleg ráðstefna og skipulag hennar.
Samstarfsnefnd félagsmálaráðuneytis um málefni aldraðara
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB sækir fundinn. Á fundinum verður m.a. á dagskrá: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og áframhaldandi umræður um áherslur nefndarinnar.
324. stjórnarfundur LEB
Stjórnarfundurinn er haldinn á skrifstofu LEB, Sigtúni 42, 105 Reykjavík. Eftir að fundargerð hefur verið rituð og samþykkt verður hún birt á vef LEB, eins og venjan er.
Starfshópur um lífskjör og aðbúnað aldraðra
Fundur hjá starfshópnum að Jöfri, Skógarhlíð 6, Reykjavík. Fulltrúar LEB á fundinum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson.
Formaður LEB flytur hugvekju í aðventumessu á Hrafnistu í Reykjavík
Aðventumessa sunnudaginn 1. desember, fyrsta sunnudag í aðventu kl. 14:00 á Hrafnistu í Reykjavík, í Helgafelli 4. hæð. Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður Landssambands eldri borgara flytur hugvekju. Einsöngur: Jóhanna Ósk Valsdóttir. Organisti: Bjartur Logi Guðnason. Kór: Félagar úr kór Áskirkju. Prestur: Sr.Svanhildur Blöndal. Sjá auglýsingu með því að smella hér
Viðtal við formann LEB á Morgunvaktinni á Rás 1
Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður LEB verður gestur Morgunvaktarinnar á Rás 1 kl. 7.30 til að ræða tillögur um að aflétta starflokakröfu opinberra starfsmanna við 70 ára aldur.
Kynningarmál lifeyrissjóða
Landssamband lífeyrissjóða efnir til fundar um kynningarmál sín á Grand hóteli kl. 12.00 - 13.00. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir og skrifstofustjóri LEB, Viðar Eggertsson, mæta á fundinn
Aukafundur Öldrunarráðs vegna rannsóknarsjóðs
Fulltrúi LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, mætir á fundinn sem haldinn er á Droplaugarstöðum.
Ritnefndarfundur vegna árlegs tímarits LEB
Ritnefnd árlegs tímarits Landssambands eldri borgara heldur fund á skrifstofu félagsins að Sigtúni 42. Ábendingar um efni er hægt að senda á netfangið leb@leb.is Í ritnefnd sitja: Erna Indriðadóttir, ritstjóri, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB, Ingólfur Hrólfsson, Mosfellsbær, Valgerður Sigurðardóttir, gjaldkeri LEB, Hafnarfjörður og Stefanía Magnúsdóttir, Garðabær
Aðventufundur Korpúlfa
Fundurinn verður haldinn að Borgum, Spöngin 43, 112 Reykjavík. Fjölbreytt dagskrá þar sem formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, mun flytja ávarp um Aðventuna og bernskuna.