Fundur Kjaranefndar LEB & FEB-R
Fundur kjaranefndar LEB & FEB í Reykjavík. Haldinn í bækistöðvum LEB, Sigtúni 42. Nefndarmenn eru: Sigurður Jónsson, Suðurnesjabær, formaður nefndarinnar, Haukur Halldórsson, varaformaður LEB, Akureyri, Stefanía Magnúsdóttir, Garðabær, Sigurbjörg Gísladóttir, Reykjavík og Ólafur Örn Ingólfsson, Reykjavík
327. stjórnarfundur LEB
Stjórnarfundurinn er haldinn á skrifstofu LEB, Sigtúni 42, 105 Reykjavík. Eftir að fundargerð hefur verið rituð og samþykkt verður hún birt á vef LEB, eins og venjan er. Stjórn LEB: Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, Haukur Halldórsson varaformaður, Valgerður Sigurðardóttir gjaldkeri, Dagbjört Höskuldsdóttir ritari og Ellert B. Schram meðstjórnandi. Varastjórn: Drífa Sigfúsdóttir, Ingólfur Hrólfsson og Ólafur Örn […]
Námskeið í tæknilæsi
Félagsmiðstöðin Dalbraut 21-27 heldur námskeið í tæknilæsi fyrir eldri borgara með námsefni sem LEB hefur gefið út. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir afhendir nýja kennslubæklinga fyrir tölvur, iPad og Androit, sem LEB hefur nú gefið út.
Guðrún Ágústsdóttir ráðgjafi LEB í viðtali í Mannlega þættinum á Rás 1
Guðrún Ágústsdóttir ráðgjafi LEB í viðtali í Mannlega þættinum á Rás 1. Guðrún var verkefnastjóri og aðalhöfundur bæklings LEB Velferðartækni - gagnast hún mér?
Fundur Laganefndar LEB
Laganefnd LEB kemur saman til fundar til að fara yfir lög landssambandsins og gerir tillögu um breytingar ef þarf. Fundurinn verður haldinn á skrifstofu LEB, Sigtúni 42 Reykjavík. Laganefnd skipa: Guðmundur Guðmundsson formaður Hafnarfirði, Finnur Birgisson Reykjavík og Drífa Sigfúsdóttir Reykjanesbæ.
Samráðsfundur LEB og Tryggingastofnunar ríkisins
Fundurinn er haldinn í húsakynnum TR að Hlíðarsmára 11, Kópavogi, kl. 11.00 – 12.00. Fulltrúar LEB eru: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB; Valgerður Sigurðardóttir, gjaldkeri LEB, Hafnarfjörður; Hrafn Magnússon, Reykjavík og Ingólfur Hrólfsson, Mosfellsbær
Starfshópur um lífskjör og aðbúnað aldraðra
Starfshópurinn er skipaður af félagsmálaráðherra. Fundur hjá starfshópnum að Jöfri, Skógarhlíð 6 (1. hæð), Reykjavík. Fulltrúar LEB á fundinum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson. Dagskráin er eftirfarandi: Velferðartækni - Hvað hefur verið innleitt, hvar og hvernig – hvað vantar upp á frekari innleiðingu góðrar tækni. Þór G Þórarinsson sérfræðingur í félagsmálaráðuneytinu kemur á […]
Fundur Laganefndar LEB
Laganefnd LEB kemur saman til fundar til að fara yfir lög landssambandsins og gerir tillögu um breytingar ef þarf. Fundurinn verður haldinn á skrifstofu LEB, Sigtúni 42 Reykjavík. Laganefnd skipa: Guðmundur Guðmundsson formaður Hafnarfirði, Finnur Birgisson Reykjavík og Drífa Sigfúsdóttir Reykjanesbæ.
Fundur Öldrunarráðs
Fulltrúi LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður, mætir á fundinn sem haldinn er á Droplaugarstöðum.
Formaður ávarpar aðalfund Félags eldri borgara Garðabæ
Aðalfundur Félags eldri borgara í Garðabæ hefur óskað eftir að formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir ávarpaði fundinn, sem er haldinn í Jónshúsi, Strikinu 6, Garðabæ.