Stjórnarfundur LEB nr. 323
Fundurinn er haldinn á skrifstofu LEB, Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Samráðsfundur Tryggingarstofnunar og LEB
Fundurinn haldinn í húsnæði TR að Hlíðarsmára 11, Kópavogi. Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður sækir fundinn f.h. LEB. Aðrir fulltrúar LEB eru: Valgerður Sigurðardóttir, gjaldkeri LEB, Hrafn Magnússon og Ingólfur Hrólfsson.
Eru fasteignir féþúfa? – Morgunverðarfundur 25. október á Grand hóteli.
LEB -Landssamband eldri borgara, Félag atvinnurekenda og Húseigendafélagið efna til morgunverðarfundar á Grand Hóteli Reykjavík föstudaginn 25. október kl. 8-10, undir yfirskriftinni „Eru fasteignir féþúfa?“ Umræðuefnið er álagning fasteignagjalda á einstaklinga og fyrirtæki og hvernig þessi skattheimta hefur á undanförnum árum vaxið langt umfram allar eðlilegar viðmiðanir. Sífellt þyngri skattbyrði hefur áhrif á félagsmenn í öllum þessum samtökum. […]
Fundur NOP, norrænna félaga eldri borgara, haldinn í Finnlandi
NPO er samráðsvettvangur norræna félaga eldri borgara í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Íslandi og Færeyjum. Fundað er að jafnaði tvisvar á ári. Að þessu sinni verður fundurinn í Finnlandi. Fyrir hönd Íslands sækja fundinn Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB og Haukur Halldórsson, varaformaður LEB.
Fundur NOP, norrænna félaga eldri borgara, haldinn í Finnlandi
NPO er samráðsvettvangur norræna félaga eldri borgara í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Íslandi og Færeyjum. Fundað er að jafnaði tvisvar á ári. Að þessu sinni verður fundurinn í Finnlandi og fundað í tvo daga, 30. og 31. október Fyrir hönd Íslands sækja fundinn Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB og Haukur Halldórsson, varaformaður LEB.
Fundur Kjaranefndar LEB & FEB
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, fundar með Kjaranefnd LEB & FEB sem í sitja: Haukur Halldórsson, varaformaður LEB, Akureyri, Sigurður Jónsson, Suðurnesjabær, Stefanía Magnúsdóttir, Garðabær og Ólafur Örn Ingólfsson, Reykjavík
Starfshópur um lífskjör og aðbúnað aldraðra
Fundur hjá starfshópnum að Jöfri, Skógarhlíð 6, Reykjavík. Fulltrúar LEB á fundinum: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Haukur Halldórsson og Þorbjörn Guðmundsson.
Viðtal við formann LEB á Hringbraut
Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, fer í upptöku á þættinum Lífið er lag á Hringbraut í dag kl. 15.00. Þar mun hún ræða húsnæðismál og fasteignagjöld. Þátturinn verður á dagskrá fljótlega, en þeir eru á dagskrá alla þriðjudaga kl. 20.30.
Formaður á fund með Velferðarsviði Reykjavíkurborgar
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður LEB, á fund með Velferðarsviði Reykjavíkurborgar um spjaldtölvunotkun eldri borgara.
Dagur öldrunarþjónustu 2019
Margt um að vera þennan Dag öldrunar 2019. Meðal annars er haldin ráðstefna á Grand hóteli: Heilsuefling frá vöggu til grafar. Uppsker ég eins og ég sái? FORVARNIR – ÞÁTTTAKA - ÞJÓNUSTA. Þar munu fjölmargir flytja stutt ávörp frá ýmsum sjónarhornum yfirskriftarinnar. Ráðstefnan hefst kl. 8.30 og lýkur kl. 15.15. Allir velkomnir!