261. fundur framkv.stjórnar 06.05.13

FUNDARGERР                                             Framkvæmdastjórnarfundur LEB nr. 261                   haldinn 06.05.2013. kl. 11:00 að Flatahrauni 3, Hafnarfirði Mættir voru: Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (JVK), Unnar Stefánsson (US) Eyjólfur Eysteinsson (EE), Ragnheiður Stephensen (RS), Sigurlaug Inga Árnadóttir (SIA) Grétar Snær Hjartarson (GSH) . Haukur Ingibergsson (HI). Anna Lúthersdóttir (AL).Fjarverandi: Guðný Kristinsdóttir (GK).SIÁ ritaði fundargerð. JVK setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna og sérstaklega þakkaði hún Jóni Kr. fyrir að fá að halda fundinn í húsnæði þeirra. Einnig sátu fundinn meðstjórnendur Jóns Kr. í LEB-H. 

  1. Fundargerð 260. fundar.

Formaður lagði fram fundargerð 260. fundar framkvæmdastjórnar LEBAfgreiðsla framkvæmdastjórnar:Fundargerðin samþykkt.  

  1. Skýrsla til NSK.

 JVK lagði fram skýrslu sem hún flytur á fundi NSK sem haldinn verður í Finnlandi 13-15. maí. Hún kvaðst vera búin að þýða hana á dönsku og senda til Anítu. US lagði fram þýðingu sína á bréfi frá Björn Lindh um starfshætti NSK í framtíðinni, en bréfið er á dagskrá fundarins.   Afgreiðsla framkvæmdastjórnar:Liðurinn er tilkynning. 

  1. Fundargögn landsfundar – Fundargögn - Spurningar – Hópastarf – Nefndir.

 JVK lagði fram endanlega dagskrá sem undirbúningsnefndin hefur sett saman og er hún eftirfarandi:Dagskrá landsfundar sem haldinn verður í Hafnarfirði 7-8 maí 2013,  Þriðjudagur 7. maí. 13:00 Afhending fundargagna13:30 Setning landsfundar (JVK)Kosning fundarstjóraKosning ritaraKosning kjörbréfanefndar 13:45 Ávörp gesta 14:00 Skýrsla stjórnar (JVK)

  1. b) Skýrsla velferðarnefndar
  2. c) Skýrsla kjaramálanefndar

Lagðir fram endurskoðaðir og áritaðir ársreikningar LEB 2011 og 2012 (EE)Umræða um skýrslu stjórnar og reikninga LEBAfgreiðsla reikningaKynnt drög að fjárhagsáætlun og tillaga um árgjald 2013 og 2014 (EE)Afgreiðsla tillögu um árgjald. 15:30 Kaffihlé 16:00 Kynntar tillögur um starfsemi LEBSkipað í nefndir: allsherjarnefnd, kjaramálanefnd og velferðarnefnd.Málum vísað til nefndaHvernig geta félög eldri borgara elft starfsemina og aukið áhrif sín?Framsaga (JVK)Hópavinna 18:00 Niðurstöður hópa 18:30 Fundi frestað 19:30 Sameiginlegur kvöldverðurÁvarp: Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri í HafnarfirðiSkemmtiatriði á vegum FEB í Hafnarfirði. Miðvikudagur 8. maí 09:00 Nefndarstörf09:45 Nefndir skila álitiUmræðurAfgreiðsla tillagna 10:30 Kaffihlé 10:45 Lagabreytingar (JVK, BB)UmræðurAfgreiðsla tillagna 11:30 Kosningar

  1. kosning formanns í 2 ár
  2. Kosning 4 aðalmanna og 3 varamanna í stjórn í 2 ár
  3. Kosning 2 skoðunarmanna ársreikninga LEB og „ Listin að lifa“ og 2 til vara í 2 ár.
  4. Kosning 2 aðalmanna og 2 varamanna í ritnefnd „Listin að lifa“ í 2 ár

12:00   Önnur mál 12:30   Fundarslit 12:40   Hádegisverður 13:30   Skoðunarferð um Hafnarfjörð. Afgreiðsla framkvæmdastjórnar:Dagskrá landsfundar LEB samþykkt. 

  1. Skipun starfshópa landsfundar.

 Rætt var um skipun formanna starfsnefnda á landsfundi og tilnefnd eru: RS fyrir Velferðarnefnd,   HI fyrir Allsherjarnefnd, og Þórunn Sveinbjörnsdóttir fyrir Kjaramálanefnd og lagt til að AL verði fyrir Kjörbréfanefnd. JVK lagði fram tillögur um hópavinnuna og fulltrúa í hana með dreifingu um landið í huga. Afgreiðsla framkvæmdastjórnar:       Samþykkt. 

  1. Fundargögn landsfundar.

 Fundargögn landsfundar eru tilbúin og verða afhent í byrjun landsfundar.Fundarstjórar verða: Eyjólfur Eysteinsson, gjaldkeri LEB og Erna Fríða Berg FEBH Gestum sem boðið er á landsfund LEB eru:Halldór Halldórsson form. Sambands íslenskra sveitarfélaga                                                        Elín Björg       Jónsdóttir form. BSRBGylfi Arnbjörnsson form. ASÍ.Jón Kr. formaður FEB í Hafnarfirði mun áður en dagskrá hefst bjóða fundarmenn velkomna og síðan tekur JVK við Afgreiðsla framkvæmdastjórnar:Samþykkt 

  1. Önnur mál.

Þar sem þetta er síðasti stjórnarfundur þessarar framkvæmdastjórnar LEB, þakkaði JVK stjórninni fyrir vel unnin störf, og þakkaði síðan sérstaklega þeim US og SIÁ sem ganga úr stjórn á landsfundi fyrir þeirra starf og gott samstarf. Fundi slitið kl 13:00. Sigurlaug I. Árnadóttir-fundarritari-

Previous
Previous

262. fundur stjórna LEB 8. maí 2013

Next
Next

260. fundargerð framkvæmdastjórnar 23 apríl