Siðareglur LEB

Siðareglur LEB – Landssambands eldri borgara gilda fyrir starfsemi LEB en eru einnig hugsaðar sem fyrirmynd fyrir starfsemi aðildarfélaga þess.

 

TILGANGUR SIÐAREGLNA ER AÐ

  • veita LEB stuðning í veigamiklu hlutverki þess við að stuðla að almannaheill í samfélaginu.

  • upplýsa almenning um þau gildi sem móta starf LEB og aðildarfélaga og auka traust á starfi þeirra.

  • hvetja til gagnrýnnar og uppbyggjandi umræðu um starfsemina.

  • auka gagnsæi, efla góða stjórnarhætti og faglegt starf í þágu eldra fólks og alls almennings.

  • setja viðmið um breytni, fagmennsku og ábyrgð sem hvílir á starfsfólki, stjórnum og sjálfboðaliðum umfram lagalegar skyldur.

ÁBYRGÐ GAGNVART ALMENNINGI, FJÖLMIÐLUM OG SAMFÉLAGI

  • LEB veitir áreiðanlegar og réttar upplýsingar sem skýra samhengi þess sem kynnt er hverju sinni. Þess skal gætt að notkun fræðilegra hugtaka og tölfræði séu aldrei villandi eða óaðgengileg almenningi.

  • LEB starfar sjálfstætt að markmiðum sínum. Það hefur hagsmuni almennings og umbjóðenda sinna að leiðarljósi.

  • LEB gætir þess að starf þess í þágu almennings takmarkist ekki af skuldbindingum eða þrýstingi stjórnvalda eða annarra hagsmunaaðila.

  • LEB hefur umhverfissjónarmið ávallt að leiðarljósi í rekstri sínum og sýnir með því gott fordæmi í umgengni við náttúru og samfélag.

ÁBYRGÐ GAGNVART SKJÓLSTÆÐINGUM, FÉLAGSMÖNNUM, NOTENDUM, UMBJÓÐENDUM OG STYRKTARAÐILUM

  • LEB ber ábyrgð á starfi sínu og sýnir öllum virðingu og trúnað.

  • Gagnsæi um starfsemi LEB skal tryggt og veittar skulu áreiðanlegar og skýrar upplýsingar um starfsemina.

  • LEB mismunar ekki þeim sem þeir eiga í samskiptum við, hvorki á grunni þjóðernis, kyns, kynhneigðar, fötlunar, trúar, skoðana eða annars fjölbreytileika.

  • LEB leitast við að styrkja mannlega reisn með því að beita sér gegn misvirðingu gagnvart manneskjum, þar á meðal einelti, kynbundinni- og kynferðislegri áreitni og ofbeldi.

  • LEB og aðilarfélög misnota hvorki stöðu sína né bregðast trausti þeirra sem þau eiga í samskiptum við.

ÁBYRGÐ STJÓRNA, STARFSFÓLKS OG SJÁLFBOÐALIÐA

  • Stjórnir, starfsfólk og sjálfboðaliðar vinni af heilindum að markmiðum og tilgangi LEB og aðildarfélaga.

  • Stjórnir, starfsfólk og sjálfboðaliðar nýta ekki trúnaðarupplýsingar í eiginhagsmunaskyni eða í þágu vina eða skyldmenna.

  • Stjórnir, starfsfólk og sjálfboðaliðar virða störf annarra félaga og samtaka, sýna hver öðrum virðingu, samstarfsvilja og stuðning og stuðla að framgangi verkefna.

ÁBYRG FJÁRMÁL ALMANNAHEILLASAMTAKA

  • Meðferð fjármuna skal vera samkvæmt viðurkenndum bókhalds- og reikningsskilavenjum og skoðun reikninga í höndum kjörinna skoðunarmanna eða endurskoðenda.

  • Upplýsingar um fjárhag og rekstur skulu vera gagnsæjar og settar fram á einfaldan og skýran máta.

  • Öll fjáröflun skal hafa skýr markmið og fara fram í samræmi við tilskilin leyfi. Áætlað kostnaðarhlutfall liggi fyrir áður en safnanir hefjast og er gert upp að söfnun lokinni.

  • Upplýsingar um ágóðahlut af hvers kyns sölu eru birtar strax og þær liggja fyrir.

  • LEB og aðildarfélög gæta þess að tengjast ekki aðilum sem starfa í ósamræmi við tilgang og markmið þeirra.

  • LEB og aðildarfélög afla ekki fjár með nokkrum þeim hætti sem telja mætti siðferðilega vafasaman.

  • Starfsfólk gætir ráðdeildar í daglegum rekstri og við meðferð fjármuna félagsins.

GILDISSVIÐ OG VIÐBRÖGÐ VIÐ BROTUM

  • Siðareglur þessar eru birtar á heimasíðu LEB og aðildarfélög skulu fylgja þeim. Þær eiga við um alla sem taka að sér störf fyrir LEB.

  • Stjórn LEB tekur við ábendingum um brot á þessum siðareglum og bregst við þeim. Stjórnin úrskurðar í hverju tilfelli hvort um brot sé að ræða, telji hún tilefni til að fjalla um ábendingu um slíkt. Við meðferð mála skal gæta trúnaðar, meðalhófs og andmælaréttar.

  • Brjóti aðili tengdum LEB gegn siðareglum þessum skal hann í samráði við stjórn LEB bæta fyrir brotið eins og hægt er, leita sátta og birta eða leiðrétta viðeigandi upplýsingar eða gera aðra þá bragarbót sem þurfa þykir.

  • Þess skal gætt að sá sem leggur fram upplýsingar um ætlað brot á siðareglunum, beri ekki skaða af.

  • Aðildarfélög LEB geta eftir atvikum sett sér sértækar siðareglur í samræmi við þessar reglur og eftir þörfum starfsvettvangs síns.

Samþykkt á landsfundi LEB í Borgarnesi 9. maí 2023

Þessar siðareglur eru samkvæmt siðareglum Almannaheilla, samtök þriðja geirans, sem LEB er aðili að. Sjá nánar: https://almannaheill.is/almannaheill/sidareglur/