295 – stjórnarfundur LEB. 24.maí 2017
Fyrsti fundur nýrrar stjórnar
Mætt voru: Þórunn Sveinbjörnsd, Sigurður Jónsson, Sigríður Guðmundsdóttir,Haukur Halldórsson, Guðrún Harðardóttir, Elísabet Valgeirsdóttir, Baldur Baldvinsson og Erna Indriðadóttir.
- Stjórnin skiptir með sér verkum og var Sigurður Jónsson valin varaformaður, Sigríður Guðmundsdóttir gjaldkeri en á þessum fundi var engin tilbúin í ritarastarfið.
- Stjórnin ræddi um landsfundinn og hvernig til hefði tekist. Menn voru sammála um að undirbúningur hefði verið of slakur sem reyndi verulega á fundarstjóra.
- Stjórnin ræddi um hverju þarf að breyta og bæta og verða slíkar tillögur lagðar fyrir fund 19.júní n.k. Þó nokkur mál verða sett í forgang í lagfæringum
- Ályktanir landsfundar voru ræddar og um mikilvægi þess að þær kæmust í umræðuna sem fyrst.
- Rætt var um hvað Hafnfirðingar tóku einstaklega vel á móti landsfundargestum og sinntu þörfum þeirra vel.
Fleira ekki rætt fundi slitið 14.30Þórunn Sveinbjörnsdóttir