Ágústa á Refsstað heiðruð af Öldrunarráði

Árlega veitir Öldrunarráð Íslands viðurkenningu að  fengnum tilnefningum sem geta verið um einstakling, stofnun eða félagasamtök. Á aðalfundi Öldrunarráðs Íslands í desember 2020 var tilkynnt um hver hlyti viðurkenninguna árið 2020.Að þessu sinni var það einstaklingur sem tilnefndur var vegna starfa sinna að öldrunarmálum í sinni heimabyggð.Ágústa Þorkelsdóttir frá Refsstað, formaður Félags eldri borgara Vopnafirði og Bakkafirði er handhafi viðurkenningar Öldrunarráðs Íslands árið 2020.Ágústa hefur verið mjög virk í félagsstörfum um áratugaskeið en að þessu sinni vakti það mikla athygli að á hennar vakt hefur verið unnið æði merkilegt starf við að safna gömlum ljósmyndum, skanna þær inn, finna nöfn á fólki sem þar er að finna og skrásetja. Vegna þessa magnaða verkefnisins hefur myndast líflegt og skemmtilegt félagsstarf í heimabyggð. Myndirnar í safninu eru nú orðnar yfir 11.000 talsins. Safnið með skrásetningu þess geymir ómetanlegar upplýsingar um tímann, þann sem liðinn er og ekki síður tímana sem við lifum nú.Mikilvægi þessa óeigingjarna starfs er óumdeilanlegt og afar mikilvægt að merkilegar myndir og saga þess fólks þar er að finna glatist ekki.Öldrunarráð Íslands færir Ágústu árnaðaróskir fyrir þetta merka starf sem mun örugglega verða til eftirbreytni miklu víðar.  Viðurkenning Öldrunarráðs hefur verið veitt reglulega síðustu ár:2019 Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni fyrir einstakt starf í þágu aldraðra. Formaðurinn Ellert B. Schram veitti Fjöregginu frá Koggu viðtöku.2018 Sesselja Magnúsdótir og Stefán Helgi Stefánsson fyrir verkefnið Elligleði. Þau hafa um árabil heimsótt hjúkrunarheimili, sambýli og dagúrræði og glatt með söng sínum.2017 Dr. Margrét Gústafsdóttir hjúkrunarfræðingur fyrir gott og óeigingjarnt ævistarf að málefnum aldraðra.2016 Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra fyrir einstakt og ósérhlífið starf í þágu aldraðra.2015 fékk Guðrún Birna Gísladóttir forstjóri Grundar viðurkenninguna fyrir langt og óeigingjarnt ævistarf að málefnum aldraðra.2014 Soffía Jakobsdóttir leikkona2013 Jón Snædal öldrunarlæknir2012 Ingibjörg Hjaltadóttir prófessor á heilbrigðissviði Háskóla Íslands2011 María Th. Jónsdóttir formaður FAAS – félag áhugafólks og aðstandenda um alzheimersjúkdóminn og aðra skylda sjúkdóma2010 Dvalarheimilið Blesastaðir2009 Sigurbjörg Björgvinsdóttir hjúkrunarfræðingur 

Previous
Previous

Þetta snýst um raunveruleg kjör eftirlaunafólks en ekki talnaleiki fjármálaráðuneytis

Next
Next

Kennslubæklingar & Taupokar LEB