Formannafundur LEB haldinn sem fjarfundur

Ákveðið hefur verið að halda formannafund LEB laugardaginn 13. mars kl. 13.00.Bryddað er upp á þeirri nýjung að freista þess að halda hann sem fjarfund í gegnum Zoom og verður spennandi að vita hvernig það muni heppnast. Stjórn LEB hefur sjálf haldið að undanförnu nokkra fjarfundi og hafa þeir heppnast æ betur eftir því sem fólk kemst betur upp á lagið að nýta tæknina.Fjarfundarformið gefur öllum 55 aðildarfélögunum vítt og breitt um landið möguleika á að tengjast á auðveldan hátt og er þetta vafalaust framtíðin í öflugu starfi LEB.Formönnunum 55 ásamt stjórn LEB hefur verið sent fundarboð ásamt leiðbeiningum hvernig er hægt að hlaða Zoom forritinu niður í ýmsum tegundum tölva og í síma.Síðan fá þeir send frekari fundargögn og síðast en ekki síst: hlekk til að tengjast fundinum á auðveldan hátt. Dagskrá formannafundarins 13. mars 2021:          Valgerður Sigurðardóttir fundarstjóri setur fund

  1. Skoðanakönnun: Eiga eldri borgarar að bjóða fram?Þóra Ásgeirsdóttir fulltrúi Maskínu sem gerði skoðanakönnuna kynnir niðurstöðurnar.
  2. Formaður LEB, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, flytur ávarp- Landsfundur LEB 2021- Staða mála í starfshóp um lífkjör og aðbúnað aldraðra- Stærstu verkefni í vinnslu hjá LEB
  3. Eldri borgarar og AlþingiskosningarnarFulltrúar aðgerðarhóps kynna stöðu mála, tillögu að kröfum eldri borgara og hugsanlegar aðgerðir
  4. Umræða fundargesta

  

Previous
Previous

Kennslubæklingar & Taupokar LEB

Next
Next

337. -Stjórnarfundur LEB 20. janúar 2021