316 - fundargerð stjórnar 6. mars 2019
Stjórnarfundur LEB 6. mars 2019Kl. 9.30- 12.00 hádegishlé.Landsfundur í vor . Dagsetning, staðsetning og efni á fræðslufundinum/afmælisfundur.Rætt var um landsfundinn og mál honum tengd. FEB í Reykjavík biður um að fundurinn verði 10. -11. apríl. Fyrri dagurinn frá kl. 13.30 er landsfundur en daginn eftir er boðið upp á viðamikinn fræðslufund um okkar málefni. Staður: Stangarhylur 4 í Reykjavík.
- Næstu fundir með stjórnvöldum.
Eigum boð til forsætisráðherra til að ræða okkar mál. En hvað svo?
- Ný heimasíða og kynning hennar.
Nú er heimasíðan að verða tilbúin eftir miklar umbætur en enn ekki allt unnið. Verður opnuð á afmælisfundi LEB.
- Umboðsmaður og erindin þar. Næstu skref.
Nokkur mál hjá umboðsmanni Alþingis og verið að vinna í þeim. Fleiri mál á leiðinni þangað.
- Vinna til 70 ára. Þetta er úrelt. Er rétt að vinna að breytingum? Dómur í Bretlandi.
Leit stendur yfir að manneskju sem er ósátt við að hætta 70 ára. Þessi mörk eru löngu úrelt og hafa enga örugga skírskotun. Aldur er ekki úrelding?
- Ályktanir frá ársfundum félaganna. Mikilvæg leið.
Nú eru að byrja að koma ályktanir frá félögum innan LEB frá ársfundum þeirra að mestu um óhóflegar skerðingar og fleira.
- Formennska í kjaranefndinni.
Sigurður Jónsson frá Suðurnesjabæ hefur um tíma verið formaður kjaranefndar LEB en nú hefur Haukur Halldórsson verið losaður frá formennsku í nefnd um kjör þeirra verst settu. Því mun Haukur taka á ný við formennsku í kjaranefnd LEB og FEB.
- Uppstillingarnefnd.
Tilnefnd voru: Baldur Þór Baldvinsson, Elísabet Valgeisdóttir og Guðmundur Guðmundsson og munu þau hefja störf nú þegar.
- Verkefni á vegum LEB.
Næstum öll verkefni á lokastigi en þessi verkefni eru með styrk frá Félagsmálráðuneyti. Eitt fór þó aldrei af stað.
- Styrkir til verkefna frá félagsmálaráðuneytinu.
Boðað var til fundar í Hannesarholti til að kynna styrki ársins. Þar mættum við Guðrún Ágústsdóttir ráðgjafi LEB og þar var tekið á móti tveimur styrkjum til verkefna: Velferðartækni og kynning til eldri borgara. Og svo hvernig náum við til nýbúa til að taka þátt í samfélagslegum þáttum s.s. félagsstarf eldri borgara en þar er skarð fyrir skyldi. Þátttakan er engin.
- Ríkisendurskoðun og ársreikningar LEB enn á huldu.
Því miður vantar enn undirritaða reikninga frá ákveðnu tímabili.
- Ritnefnd og blað. Staðan nú.
Mikið að gerast og allt á fullu. Við stefnum að glæsilegu félagsblaði. Unnið eftir nýjum leiðum
- Samstarf við „Farsæla öldrun“.
Styðjum við umsókn þeirra í Framkvæmdasjóð aldraðra? Auk verkefna sem til falla.Frábær hópur til að eiga samstarf við.
- Útsendingarbréf frá LEB og Rauðakrossinum farið út .
Glæsilegt samstarf sem mun skila árangri.
Fundargerð ritaði Þórunn Sveinbjörnsdóttir