Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála tekur til starfa

 

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála tekur til starfa - mynd

 

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála tók til starfa 1. janúar 2022 þegar lög nr. 88/2021 um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála tóku gildi. Stofnunin tekur við verkefnum Gæða- og eftirlitsstofnunar félagsþjónustu og barnaverndar sem starfaði sem ráðuneytisstofnun frá 7. maí 2018 til 31. desember 2021, fyrst innan velferðarráðuneytis og síðar félagsmálaráðuneytis, á grundvelli heimildar í lögum um Stjórnarráð Íslands. Þá tekur stofnunin við eftirlitsverkefnum sem áður heyrðu undir Barnaverndarstofu,Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála mun fara með eftirlit með gæðum þjónustu sem er veitt á grundvelli barnaverndarlaga, laga um Barna- og fjölskyldustofu, laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, laga um málefni aldraðra, laga um Ráðgjafar- og greiningarstöð, laga um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu og laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Þá mun Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála veita rekstrarleyfi og þróa gæðaviðmið á grundvelli bestu mögulegu þekkingar á málaflokkum á verkefnasviði stofnunarinnar.Hægt er að beina fyrirspurnum til stofnunarinnar á netfangið gev@gev.is. Umsóknir um leyfi og móttaka kvartana fer fram inn á „mínum síðum“ á vefsíðu stofnunarinnar.
Previous
Previous

Forseti ASÍ stígur inn í umræðuna um eldri borgara

Next
Next

Hvorki uppbót né jólabónus, heldur hækkun lífeyris