Neyðaróp úr hópi eldri borgara

Íslenskur verkfræðingur, kominn á níræðisaldur, flutti nýverið til Íslands eftir langa starfsævi í Noregi. Hann hafði ekki dvalið lengi í föðurlandinu að hann afréð að hafa samband við ritstjórann sem hér heldur á penna og segja honum frá því hvað hann skammaðist sín mikið fyrir að vera aldraður maður á Íslandi; hér á landi væri komið fram við hans líka eins og einhverja umframframleiðslu sem ekkert pláss væri fyrir.Hann bætti því við að hann vildi helst ekki ræða hlutskipti sitt við gömlu skóla-félagana frá því á námsárunum úti í Noregi, en allir hefðu þeir hlakkað til efri áranna á síðustu misserum starfsævinnar, enda vissu þeir upp á hár hvað biði þeirra.Og allt gekk það eftir, bætti verkfræðingurinn við, í tilviki norsku vinanna hans, en þeim bæri öllum saman um að aldrei hefðu þeir haft það betra en einmitt eftir að þeir komust á eftirlaun. Og væri hann ekki sjálfur sáttur eftir að hafa flust aftur heim til Íslands, spurðu þeir auðvitað til baka, en verkfræðingurinn kvaðst hafa eytt því tali.Af skömm.Við Íslendingar höfum þann háttinn á að leggja fátæktargildrur fyrir gamalt fólk. Og svo niðurlægingin gagnvart þessum aldurshópi sé ekki nógu mikil eigum við líka heimsmet í skerðingaráráttu almannatryggingakerfisins, að því er Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði, sagði í sjónvarpsþættinum Kjör aldraðra, sem sýndur var á Hringbraut um helgina, en hann er sá fræðimaður hér á landi sem mest og lengst hefur rannsakað efnahag íslenskra ellilífeyrisþega.Í sama þætti var fjallað á opinskáan hátt um neyðarópið sem berst nú um stundir úr hópi aldraðs fólks á Íslandi sem uppgötvar margt hvert við enda starfsævinnar að það mun verða fátækt gamalmenni, ævina á enda. Einkum og sér í lagi á þetta við um konur sem hafa unnið láglaunastörf um sína daga – og mjög líklega stopult vegna barneigna og uppeldisstarfa, en það er einbeittur vilji almannatryggingakerfisins að koma fram við þann hóp okkar landsmanna af óvirðingu. Og hafi það skrimt á lægstu laununum allan sinn starfsaldur, sem vel að merkja er undir framfærsluvið-miðunum hins opinbera, má heita nóg að það fái 75 prósent af því kaupinu í ellilaun.Þetta er skömmin sem gamalt fólk á Íslandi þorir ekki að tala um við vini sína í útlöndum.-Sigmundur Ernir RúnarssonGreinin birtist í leiðara Fréttablaðsins 14. September 2021.

Hér er hægt að horfa á sjónvarpsþáttinn: KJÖR ALDRAÐRA
Previous
Previous

Eldri borgarar og alþingiskosningar

Next
Next

Leiðbeiningabæklingurinn ,,Við andlát maka"