Opið bréf til formanna stjórnmálaflokka við ríkisstjórnarmyndun

 Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðhera,Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra,Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra. Landssamband eldri borgara leyfir sér að senda ykkur helstu áhersluatriði  eldra fólks, sem tekin voru saman af formönnum nokkurra stærstu félaga innan sambandsins, samþykkt á formannafundi allra félaganna 55  og loks á landsfundi samtakanna í vor. Þessi áhersluatriði hafa verið kynnt öllum stjórnmálaflokkum sem buðu fram til síðustu alþingiskosninga, verkalýðshreyfingunni, samtökum atvinnurekenda, samtökum sveitarfélaga og víðar og eru ítrekuð hér sem innlegg í yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræður.Við leyfum okkur að fullyrða að þesssum hugmyndum okkar hefur alls staðar verið vel tekið og við teljum að þær hafi átt hljómgrunn og orðið hluti af kosningabaráttunni.   Má sérstaklega geta jákvæðra viðbragðra fulltrúa ykkar á kynningarfundum LEB.Enn einu sinni er komið að efndum á loforðum um bætta þjónustu við eldra fólk og bættan hag þeirra. Eldra fólk hefur lagt fram kröfu um að frítekjumark vegna lífeyristekna verði 100.000 kr. og að fá að vinna eins og það vill án skerðinga. Eldra fólk vill að starfslok miðist við færni en ekki aldur, að heilsugæslan verði vagga öldrunarþjónustunnar, að til verði millistig í búsetukostum á milli heimilis og hjúkrunarheimilis og að lög um málefni þeirra verði einfölduð til muna.Hjálögð eru ítarleg áhersluatriði okkar sem kynnt voru i vor   og það er von okkar að þau rati í stjórnarsáttmála ykkar.Með vinsemd og virðinguHelgi Pétursson, formaður Landssambands eldri borgara. Eldra fólk vill hafa áhrif á eigið lífÁhersluatriði eldra fólks umbættan hag og þjónustu

  1. Eldra fólk fái að vinna eins og það villAlmennt frítekjumark verði 100.000 kr. Eftirlaunafólk fái að vinna eins og því sýnist án skerðinga í almannatryggingakerfinu og njóti afraksturs vinnu sinnar eins og aðrir. Lágmarkslífeyrir verði aldrei lægri en umsamin lágmarkslaun á almennum vinnumarkaði. Ellilífeyrir og frítekjumörk hækki árlega samkvæmt launavísitölu Hagstofu Íslands.
  2. Starfslok miðist við færni en ekki aldurÞað er réttlætismál að eldra fólk fái að miða starfslok sín við áhuga, færni og getu en þurfi ekki að hætta virkri þátttöku í atvinnulífinu eingöngu vegna aldurs. Aldurstengdar viðmiðanir sem fara í bága við jafnræðisreglu stjórnarskárinnar ætti að fella úr allri lagasetningu, en leggja þess í stað áherslu á þekkingu, reynslu, hæfni og menntun fólks óháð aldri.
  3. Heilsugæslan verði vagga öldrunarþjónustunnarTil að eftirlaunafólk geti lifað mannsæmandi lífi heima hjá sér með reisn, þurfa ríki og sveitarfélög að stórauka samvinnu sína með það að markmiði að heilsugæslan verði vagga öldrunarþjónustunnar. Öll fjárframlög taki mið af þessu. Heilsugæslan nálgist eldra fólk fyrr á lífsleiðinni með samhæfðri teymisvinnu lækna, hjúkrunarfræðinga og félagsþjónustu sveitarfélaga og haldi því sambandi. Velferðartækni ætti að vera mikilvægur þáttur í öryggi og bættri aðstöðu í heimahúsum eldra fólks. Þáttur aðstandenda verði metinn til launa með umönnunarálagi. Stofnun öldrunargeðdeildar fyrir fólk með sértækar þarfir er forgangsmál.
  4. Millistig milli heimilis og hjúkrunarheimilisLjóst er að búseta á eigin heimili hentar ekki öllum, þó þeir þurfi ekki dvöl á hjúkrunarheimili. Búsetuúrræði fyrir eldra fólk eru hins vegar alltof fábreytt. Það vantar millistig milli búsetu á eigin heimili og hjúkrunarheimili. Brýnt er að byggja upp þannig búsetuform til hagsbóta fyrir eldra fólk og þá ekki síður fyrir velferðarkerfið, sem er á forræði ríkis og sveitarfélaga.Fjármunum Framkvæmdasjóðs aldraðra verði einungis varið til byggingar stofnana fyrir aldraða og til að mæta kostnaði við nauðsynlegar breytingar og endurbætur á húsnæði sem notað er til þjónustu við þá eins og kveðið er á um í lögum.
  1. Ein lög í stað margra lagabálkaUm málefni sem varða eldra fólk sérstaklega gilda of margir og of sundurleitir lagabálkar þar á meðal almannatryggingalögin. Einfalda þarf lagaumhverfið og gera það skilvirkara meðal annars með því að skilja að lög um eldra fólk og öryrkja. Tryggja þarf aðkomu eldra fólks að þeirri endurskoðun.

Samþykkt á landsfundi LEB – Landssamband eldri borgara, 26. maí 2021 Þetta bréf var sent ráðherrunum í netpósti 12. október og síðan birt sem opið bréf til þeirra, fyrst í Morgunblaðinu 16. október 2021.

Previous
Previous

Verður sigur í skerðingamálinu jólagjöfin í ár?

Next
Next

Leiðbeiningabæklingurinn ,,Við andlát maka“