Réttlæti er krafan, ekki innantóm loforð

Landsfundur LEB var haldinn á Hótel Reykjavík Natura, 14. maí 2024

Met þátttaka var á fundinum þar sem um það bil 150 fulltrúar tóku þátt.Formaður LEB, Helgi Pétursson setti fundinn og undir skýrslu stjórnar fór hann yfir það helsta sem hefur verið á dagskrá sambandsins sl. ár. Stærstu baráttumálin eru kjaramál og húsnæðismál. Helgi nefndi að fullt var út úr dyrum á málþingi LEB sl. haust, um kjör eldra fólks. Það er ógnvænleg staða að á bilinu 15 – 20 þúsund manns, í þessum aldurshópi, lifi undir framfærslu lágmarki. Vandinn liggur hjá stjórnvöldum sem virðast ekki hafa áhuga á að standa við gefin loforð um úrbætur á því kerfi sem skammtar eldri borgurum lífeyri. Helgi hvatti fundarmenn til að leggjast á árarnar og taka þátt í því að reyna að ná eyrum ráðamanna, í von um að bæta kjör eldri borgara, með áherslu á þá sem bágust hafa kjörin.Í kosningum til stjórnar var Sigrún C. Halldórsdóttir, Ísafirði, endurkjörin sem aðalmaður. Auk hennar var Þóra Hjaltadóttir, Akureyri, kosin í aðalstjórn. Fyrir voru í aðalstjórn þau Helgi Pétursson, formaður, Drífa Sigfúsdóttir, varaformaður og Þorbjörn Guðmundsson.Til varastjórnar var kjörin, Margrét Halldórsdóttir, Kópavogi. Fyrir í varastjórn voru þau Magnús J. Magnússon og Ásgerður Pálsdóttir.Á fundinum voru samþykktar ályktanir, annars vegar um kjaramál og hins vegar um húsnæðismál sem verða birtar strax að loknum fyrsta fundi nýrrar stjórnar LEB. 

Previous
Previous

Ályktanir Landsfundar 2024

Next
Next

Dagskrá Landsfundar LEB 2024