Tíu manna samkomutakmarkanir frá 25. mars í þrjár vikur
Tíu manna samkomubann tekur gildi 25. mars og gildir um alla sem eru fæddir fyrir árið 2015.Skólum verður lokað og staðnám á grunnskóla-, framhaldsskóla- og háskólastiginu óheimilt frá og með deginum í dag fram til 1. apríl.Þá verður margvísleg starfsemi sem rúmast ekki innan fjöldatakmarkananna stöðvuð. Ákvarðanir byggja á tillögu sóttvarnalæknis um að grípa tafarlaust til ráðstafana. Munu takmarkanirnar gilda um allt land og í þrjár vikur.Að öðru leyti er um að ræða sömu reglur og tóku gildi 30. október í fyrra og gáfust vel til að kveða niður þriðju bylgjuna.Helstu breytingar
- Almenn fjöldatakmörkun miðar við tíu manns
- Trú og lífsskoðunarfélög mega taka á móti 30 gestum
- Líkamsræktarstöðvum, sund- og baðstöðum verður lokað
- Íþróttastarf leggst af og íþróttir barna þar sem hætta er á snertismiti verða óheimilar
- Loka leikhúsum og bíóum
- Skemmtistaðir, krár og spilakassar lokaðir
- Veitingastaðir mega hafa opið til 22 með hámark 20 gestum, mega taka á móti gestum til 21
- Verslanir mega taka á móti að hámarki 50 manns, færri í minni verslunum
- Hársnyrtistofur og snyrtistofur mega áfram starfa