Umboðsmaður viðskiptavina TR

Jóhanna Ósk Baldvinsdóttir er umboðsmaður viðskiptavina TR en um er að ræða nýtt starf sem hún tók við í lok síðasta árs. Meginhlutverk umboðsmanns felst í að leiðbeina viðskiptavinum í meðferð mála hjá stofnuninni og aðstoða þau sem telja sig ekki hafa fengið efnislega umfjöllun eða úrlausnir í samræmi við gildandi lög og reglur.Markmiðið með starfi umboðsmanns er einkum að styrkja tengsl viðskiptavina og TR ásamt því að stuðla að umbótum í stjórnsýslu og þjónustu í þágu viðskiptavina.Umboðsmaður:
  • veitir leiðbeiningar varðandi meðferð mála hjá TR
  • leiðbeinir þeim sem telja sig ekki hafa fengið efnislega umfjöllun eða úrlausnir í samræmi við gildandi lög eða reglur
  • veitir ráðgjöf og aðstoð um endurupptöku og kæruleiðir
  • skal vera hlutlaus þjónustuaðili fyrir viðskiptavini og miðla upplýsingum til þeirra
  • stuðlar að bættum starfsháttum með það að leiðarljósi að jafnræði sé virt í hvívetna í stjórnsýslunni og meðferð mála fari fram í samræmi við lög og vandaða stjórnsýsluhætti
  • fræðir starfsfólk og leiðbeinir því um góða stjórnsýsluhætti
  • getur tekið upp mál til skoðunar að eigin frumkvæði

Erindi til umboðsmanns þurfa að vera skrifleg og berast á netfangið umbodsmadur@tr.is Þar þarf að koma fram lýsing á málavöxtum og hvaða óskir viðkomandi hefur um leiðbeiningar, úrbætur eða breytingar.Rétt er að taka fram að umboðsmaður tekur almennt ekki að sér mál sem er í vinnslu innan TR eða þegar það er til meðferðar hjá úrskurðarnefnd velferðarmála, umboðsmanni Alþingis eða dómstólum og niðurstaða liggur ekki fyrir. Þá tekur hann erindi ekki fyrir ef meira en tvö ár eru liðin frá því að stjórnvaldsákvörðun var tekin í umræddu máli.Umboðsmaður ákvarðar ekki í málum, heldur veitir leiðbeiningar og vísar málum til viðeigandi sviðs innan TR ef ástæða þykir til.Viðskiptavinir eru hvattir til að nýta sér þjónustu umboðsmanns ef þörf er á. 

jóhanna.jpgJóhanna Ósk Baldvinsdóttir, umboðsmaður viðskiptavina. umbodsmadur@tr.is
 
Previous
Previous

Fréttabréf Vöruhúss tækifæranna september 2023

Next
Next

Ein greiðsla á ári góður kostur