Að kunna að njóta litlu hlutanna í lífinu
|
|
Maria Branyas er elsta manneskja heims. Hún varð 117 ára í síðustu viku. Maria býr í Girona í Katalóníu. Hún er eldhress, minnið er gott og hún hefur ekki fengið krabbamein eða strítt við hjarta- eða æðasjúkdóma. Hún segist sjálf ekki hafa gert neitt sérstakt sem hún geti þakkað langlífið.Eða hvað…?Það virðist nefnilega vera eitt framar öðru sem ýtir undir langlífi. Við komum að því. |
|
Tilvera Mariu var róleg, fábreytt og giska fín þar til allt í einu fyrir rúmu ári, þá varð hún bókstaflega heimsfræg. Af því að þá dó hin franska Lucile Randon sem var orðin 118 ára. Og allt í einu vildu dagblöð um allan heim tala við „nýju“elstu konu heims, forseti Katalóníu bauð henni í heimsókn og Twitter-reikningur hennar sprakk nánast. Aðstandendur Mariu leyfðu þessari frægð að malla um stund, en svo var dyrunum að heimili hennar lokað.Lífslíkur á Spáni eru þær 5. lengstu í heiminum, á eftir Japan, Sviss, S-Kóreu og Singapúr. (Ísland er nokkrum sætum neðar.) Hér í landi (Spáni) eru tæplega 20.000 manns sem hafa lifað í heila öld. 758 eru komnir yfir 105 ára aldurinn og vitað er um þrjá sem eru yfir 110 ára.Manel Esteller, sérfræðingur í krabbameinslækningum, fékk að taka sýni úr munnvatni, blóði og þvagi Mariu. Sér til mikillar furðu komst hann að því að frumur Mariu eru 10 árum yngri en þær eiga að vera (ekki biðja mig um að útskýra þetta).Og þá komum við að lyklinum að langlífi, eða þannig: Lola Merino sálfræðingur við Complutense háskólann í Madrid hefur tekið viðtöl við tugi manns sem náð hafa 100 ára aldri. Hún segir að eitt einkenni lífshlaup þeirra allra. „Þau kunna að njóta litlu hlutanna í lífinu sem veita þeim gleði og þau virðast hafa það að leiðarljósi að nálgast hlutina með jákvæðri afstöðu. Þau eiga jákvæði samskipti við annað fólk, þeim finnst þau vera elskuð og þau leggja áherslu á að sýna öðrum ástúð. “Maria segist vera búin að sætta sig við og undirbúa sig fyrir dauðann fyrir lifandis löngu. Hann sé guðvelkominn þegar hann kemur.„Það eina sem ég óska mér eftir að ég hverf á braut er að einhverju fólki finnist það hafa verið þess virði að hafa mig í lífi sínu um stund “, segir Maria Branyas, elsta manneskja heims.Jóhann Hlíðar Harðarson |
|
Magnavita - Magnað líf á 3ja æviskeiði
|
|
|
Útskrift fyrsta hópsins úr Magnavitanáminu í HR í desember 2023
|
|
Nú er opið fyrir skráningu í stórkostlegt nám sem Magnavita og Opni Háskólinn í Reykjavík bjóða upp á fyrir fólk á þriðja æviskeiði. Námið stendur yfir í tvær annir, það hefst í september 2024 og því lýkur með útskrift í apríl 2025. Kennsludagar eru á miðvikudögum, að jafnaði einn dag í viku og kennt er í HR. Námið er sniðið fyrir fólk á aldrinum 55-75 ára sem er um það bil að ljúka föstu starfi eða hefur þegar lokið því. Tilgangur Magnavita-námsins er að fjölga spennandi og heilbrigðum æviárum.Við lítum svo á að 3ja æviskeiðið sé nk uppskerutímabil lífsins þar sem lífsgæða er notið og tíminn nýttur eins vel og mögulegt er. Við erum á sama tíma auðmjúk gagnvart því að lífsgæði snúast um marga þætti, yfir sumum þeirra höfum við vald og öðrum ekki. Áherslan í Magnavita-náminu er á andlega, líkamlega, félagslega og fjárhagslega hreysti okkar.Lífið er magnað en um leið hverfult. Lífslíkur kvenna á Íslandi eru með þeim mestu í heimi. Meðalævilengd kvenna er 84 ár og karla 81 ár. Til að meta heilsufar fólks hafa Hagstofur þjóða þróað og birt mælikvarða á fjölda þeirra æviára sem við njótum heilsu, þ.e. mælikvarða sem segir til um hverjar séu lífslíkur við góða heilsu eins og mælikvarðinn er kallaður hér heima. Verið er að meta hversu lengi fólk lifir án þess að vanheilsa hamli daglegu lífi þess. Í skýrslu sem forsætisráðuneytið birti 2019 og ber heitið Mælikvarðar um hagsæld og lífsgæði kemur fram að lífslíkur við góða heilsu meðal kvenna á Íslandi var 66 ár árið 2015. Þá voru lífslíkur 84 ár og því má segja að 18 síðustu árin (að meðaltali) hefðu konur mátt vænta þess að vanheilsa hamli þeirra daglega lífi. Karlar gátu gert ráð fyrir lífslíkum við góða heilsu til 71 árs.Sjá mynd úr skýrslunni: |
|
Svipaðar tölur um lífslíkur við góða heilsu komu fram í skýrslu sem Lýðheilsustofnun Englands (Public Health England) gaf út árið 2017. Skýrslan ber heitið Health Profile for England, þar kemur fram að konur á Englandi máttu vænta þess að munur á heildar-lífslíkum þeirra og lífslíkum við góða heilsu (e. Healthspan) væri rúm 19 ár. Þessar skýrslur varpa köldu ljósi á þriðja æviskeiðið en um leið eru þær hvatning til forvarna í heilbrigðismálum á landsvísu og ekki síður hvatning til einstaklinga um að nýta sér þekkingu sem stuðlað getur að því að við bætum eigið líf innan þess ramma sem við getum.Stofnendur Magnavita eru Benedikt Olgeirsson, Guðfinna Sesselja Bjarnadóttir og Sigríður Olgeirsdóttir. Ofangreindar upplýsingar ásamt fleiru voru okkur hvatning til að þróa starfsemi Magnavita sem snýst um alls kyns verkþætti til að fjölga spennandi og heilbrigðum æviárum. Við ákváðum strax í upphafi að byrja á að þróa nám sem tæki á helstu þáttum sem við getum sem einstaklingar tekið á til að stuðla að góðu lífi á 3ja æviskeiði. Í janúar 2023 hóf fyrsti Magnavita hópurinn nám í Opna Háskólanum í HR og annar hópur í september 2023. Í náminu eru margvísleg námskeið um mikilvæg efni eins og um tilgang lífisins, hagnýta heimspeki, að fjölga heilbrigðum æviárum, nýsköpun og fjármál, tengslanet, húmor og áhugamál, menningu og listir o.fl. Nú þegar fyrsti hópurinn hefur útskrifast og sá næsti mun klára námið í apríl 2024 þá erum við reynslunni ríkari. Í lokaverkefnum segja nemendur frá breytingum á lífsstíl og á eigin lífi og halda þannig til haga því sem þau hafa áorkað í náminu fyrir sig sjálf og hvetja um leið samnemendur til dáða.Að loknu námi eru nemendur með skýra sýn og markmið fyrir þriðja æviskeiðið. Margir nemendur hafa tekið myndarlega á eigin lífstíl og venjum, farið út fyrir þægindarammann til að þroskast og takast á við spennandi framtíð. Í hópnum eru einstaklingar sem hafa stofnað ný fyrirtæki eða breytt núverandi fyrirtækjum, eflt sig andlega og líkamlega, farið á vit ævintýra, sett sér spennandi markmið og fundið leiðir til að auka líkamlegan, andlegan, félagslegan og fjárhagslegan styrk sinn. Útskriftarhópurinn heldur vel saman, ýmsir hópar hafa verið settir af stað og eru í gangi, m.a. útivistarhópur, menningarhópur og golf-hópur. Við erum skólasystkin sem eigum okkur dásamlega vináttu og samstöðu. Öll erum við með sama markmið um að stuðla að spennandi og heilbrigðum æviárum innan þeirra marka sem við getum sjálf og það er stórkostlegt.Guðfinna Sesselja Bjarnadóttir |
|
Minestrone frá Sardiníu lengir lífið
|
|
Ítalska eyjan Sardinía er eitt af „bláum svæðum“ heimsins þar sem langlífi er áberandi mest. Það sem fólk á þessum svæðum á sameiginlegt er að gróft korn, grænmeti, baunir, rótarávextir, fræ og hnetur eru a.m.k. 80% af mataræði þeirra. Einn algengasti réttur á borðum sardínískra fjölskyldna er minestronesúpa, sem hægt er að breyta eftir árstíðum og aðlaga því sem kemur ferskast upp úr garðinum, en uppistaðan er alltaf baunir og fregola-pasta, sem er vinsælt á Sardiníu. Sardiníubúar segja að einn bolli af baunum á dag lengi ævina um nokkur ár.Hér kemur réttur aprílmánaðar frá Blue Zones.Þessi uppskrift er fyrir 6-8 manns þannig að það er tilvalið að bjóða stórfjölskyldunni í hádegismat eftir hressandi gönguferð í vorgjólunni.Innihaldsefni:1,5 dl þurrkaðar smjörbaunir (Limabaunir)1,5 dl þurrkaðar Pintobaunir1,5 dl þurrkaðar kjúklingabaunir(eða niðursoðnar baunir, 1 dós af hverri tegund)góð jómfrúar ólífuolía1 saxaður laukur4 gulrætur skornar í bita3 sellerístilkar skornir í bita4-5 söxuð hvítlauksrif1 dós saxaðir tómatar4-6 kartöflur (eftir stærð), flysjaðar og skornar í bita3,5 dl fennel, skorið smátt1 dl söxuð steinselja1 tsk oregano1,5 dl fregola pasta frá Sardiníu, perlukúskús (ísraelkúskús) eða perlubygg½ tsk salt½ tsk svartur pipar50 g rifinn Pecorino eða Parmesan osturAðferð:
- Leggið baunirnar í bleyti í stórri skál af vatni a.m.k. 8 klst eða yfir nótt. Hellið vatninu af og skolið. (Ef notaðar eru niðursoðnar baunir er hellt af þeim og þær skolaðar, þær þurfa ekki mikla suðu og eru látnar í pottinn þegar eftir eru um 15 mínútur af suðutímanum).
- Hitið 3-4 msk af olíu í stórum potti. Setjið lauk, gulrætur og sellerí í pottinn og steikið á meðalhita í um 5 mínútur. Bætið hvítlauknum út í og látið hann mýkjast.
- Setjið tómata, kartöflur, fennel, steinselju, oregano og þurrkuðu baunirnar í pottinn ásamt 1,5-2 l af vatni þannig að það fljóti vel yfir allt saman. Ef notaðar eru niðursoðnar baunir eru þær settar út í síðar.
- Látið suðuna koma upp, lækkið hitann og sjóðið við hægan hita í pottinum í u.þ.b. 1 ½ klst. Bætið meira vatni í pottinn ef þarf.
- Bætið pasta eða perlukúskús, salti og pipar í pottinn (ásamt dósabaununum ef við á) og hrærið vel. Bætið allt að 5 dl af vatni út í ef þarf. Látið sjóða áfram við hægan hita þar til pastað er soðið, u.þ.b. 10 mínútur. Ath. að ef notað er perlubygg þarf það lengri suðu.
- Setjið 1 msk. af góðri jómfrúarolíu í hvern disk, hellið súpunni í diskana og stráið rifnum osti yfir.
Það er tilvalið að breyta til og nota það grænmeti sem er ferskast og fallegast hverju sinni, t.d. kúrbít, strengjabaunir, hvítkál, grænkál, blómkál eða spergilkál. Þau sem vilja hafa súpuna bragðmeiri geta sett chiliflögur í hana, eða gefið súpunni miðjarðarhafskeim með því að kryddað hana með broddkúmeni, kóríander og túrmerik.Sólveig H Georgsdóttir |
|
Viðburðir U3A Reykjavík í apríl 2024
|
|
|
F.v.: Sigga Dögg, HaraldurSigurðsson, Björn Oddsson, Pálmi V. Jónsson |
|
Á meðan við bíðum eftir vorinu býður U3A Reykjkavík upp á eftirfarandi þriðjudagsfyrirlestra:
- 23. apríl Bangsimon BjallaBjörn Oddson akademiker á eftirlaunum kynnir þýðingu sína á ljóðabók Celina Cönz sem er ein vinsælasta barna- og unglingabók í Sviss. Boðið verður upp á kaffiveitingar og bókin verður til sölu.https://u3a.is/vidburdir/bangsimin-bjalla/
- 30. apríl Þjónusta við aldraðaPálmi V. Jónsson öldrunarlæknir fjallar um sína sýn á umönnun og þjónustu við aldraða og aðstandendur þeirra.https://u3a.is/vidburdayfirlit/
Með kveðju frá stjórn U3A Reykjavík. |
|
Kíktu í Vöruhús tækifæranna
|
|
Vöruhús tækifæranna er markaðstorg tækifæra fólks á þriðja æviskeiðinu sem vill móta framtíðina á eigin forsendum.
|
|
|