Áskorun um byggingu nýs landsspítala
Stjórnarfundur Landssambands eldri borgara haldinn 14. apríl skorar á stjórnvöld að standa við fyrri ákvörðun um byggingu landsspítala við Hringbraut. Allur sá undirbúningur sem hefur miðast við þá staðsetningu má ekki fara forgörðum. Þær byggingar sem fyrir eru á Hringbraut eru sumar það nýjar að eðlilegt er að þær séu í tengslum og nýtist við nýjan landsspítala. Má þar meðal annars nefna Barnaspítala Hringsins. Þó skiptar skoðanir hafi verið um staðsetningu hefur sú tillaga að byggja við Hringbraut notið meirihluta fylgis. Ljóst er að allar breytingar mundu seinka byggingu um all mörg ár. Það er óásættanlegt að svo fari. Með nýrri byggingu landsspítala við Hringbraut skapast möguleikar á að nýta núverandi Landsspítala í Fossvogi sem sérstaka miðstöð öldrunarlækninga. Það væri verðugt hlutverk fyrir þá byggingu þar sem ljóst er að með fyrirsjáanlegri fjölgun aldraðra er mjög æskilegt að hafa betri aðstöðu til öldrunarlækninga og rannsókna en nú er.Landssamband eldri borgara hvetur til þess að framkvæmdir verði hafnar sem allra fyrst.