Ályktun um kjaramál samþykkt á landsfundi LEB 2015

Landsfundurinn skorar á stjórnvöld að ljúka endurskoðun laga um almannatryggingar. Endurskoðunin verður að leiða til þess að dregið sé úr óhóflegum tekjutengingum milli almannatryggingakerfisins og lífeyrissjóða. Landsfundurinn vill að starfslok verði sveigjanleg og valkvæð. Landsfundurinn getur fallist á hækkun lífeyristökualdurs á löngum tíma, en breyting taki ekki gildi fyrr en að 5 árum liðnum frá gildistöku lagabreytinga. Með því skapast aðlögunartími fyrir þá sem eiga eftir allt að 5 ár í starfslokaaldur.Landsfundurinn skorar jafnframt á aðila vinnumarkaðarins að gera átak í að skapa eldra fólki atvinnutækifæri svo að starfslokaaldurinn verði í reynd virðing við atvinnuþátttöku eldra fólks og framkvæmanlegur án þess að fólk endi á örorkubótum eða skertum lífeyri.Landsfundurinn krefst þess að lífeyrisréttindi einstaklinga hjá lífeyrissjóðum verði samræmd. Landsfundurinn lýsir yfir megnri óánægju með skerðingu á greiðslum frá lífeyrissjóðum til eftirlaunafólks. Jafnframt er óviðunandi að lífeyrissjóðstekjur séu tvískattaðar.Landsfundurinn krefst þess að lífeyrir Almannatrygginga taki að lágmarki sömu hækkunum og lægstu laun sem samið verður um í næstu kjarasamningum. Jafnframt að sett verði framfærsluviðmið sem taki mið af raunkostnaði.. Enn og aftur skal bent á að hækkun persónuafsláttar væri besta kjarabót láglaunafólks og þar með eftirlaunafólks. Því er skorað á stjórnvöld að hækka skattleysismörkin myndarlega. Lágmarkstekjur til framfærslu verði ekki skattlagðar. Jafnframt skorar landsfundurinn á stjórnarflokkana að standa við gefin loforð um að bæta öldruðum kjaraskerðinguna sem varð á árunum 2009 -2013 og að lækka fjármagnstekjuskatt. Skerðingar á frítekjumarki vegna fjármagnstekna aldraðra og öryrkja sem tóku gildi árið 2009 verði afturkallaðar strax.Landsfundurinn lýsir yfir megnri óánægju með þá árlegu ákvörðun alþingis að aftengja við afgreiðslu fjárlaga, 69.grein almannatryggingarlaga, sem er svohljóðandi: „að bætur almannatrygginga skuli breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ákvörðun skal taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs“.Landsfundurinn krefst þess að stjórnvöld virði ákvæði og anda laganna um almannatryggingar og hækki lífeyri aldraðra og öryrkja árlega í samræmi við hækkun launa og verðlagsLandsfundurinn leggur til að virðisaukaskattur á lyf verði felldur niður og bendir á að margar þjóðir eru með lyf í lægsta þrepi virðisaukaskatts eða að slíkur skattur er ekki lagður á lyf.Landsfundurinn leggur til að sveitarfélögum verði frjálst samkvæmt lögum að fella niður fasteignaskatta á eldri borgurum af íbúðum til eigin nota.

Previous
Previous

Ályktun um félags- og velferðarmál samþykkt á landsfundi LEB 2015

Next
Next

Áskorun um byggingu nýs landsspítala