Drög að stefnu um heilbrigðisþjónustu við aldraða komin í samráðsgáttina

 Drög að stefnu um heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda og verða aðgengileg þar til umsagnar fram til 1. september næstkomandi. Heilbrigðisráðherra fól Halldóri Guðmundssyni dósent við HÍ og fyrrverandi framkvæmdastjóra Öldrunarheimila Akureyrar að vinna þessi drög og hefur hann nú skilað skýrslu sinni. Stefnudrögin voru sett inn í samráðsgáttina í dag 2, júlí en þau verða jafnframt kynnt á Heilbrigðisþingi sem boðað hefur verið til þann 20. ágúst næst komandi.Heilbrigðisráðuneytið óskaði þess að við gerð stefnudraganna yrði horft til heildarskipulags þjónustu við aldraða, samþættingar milli heilbrigðisþjónustu og félagslegrar þjónustu og þverfaglegs samstarfs á milli þessara þjónustustiga. Einnig að tekið yrði mið af nýjum áskorunum og viðfangsefnum til framtíðar á þessu sviði og fjallað um mögulegar breytingar á framkvæmd þjónustunnar og skipulagi hennar með hliðsjón af nýsköpun og þróun hérlendis og hjá nágrannaþjóðum. Þá lagði ráðuneytið áherslu á að haft yrði samráð við notendur öldrunarþjónustu og aðstandendur þeirra um allt land og einnig við þá aðila sem helst koma að þjónustu við aldraða, hvort heldur hjá ríki, sveitarfélögum eða einkaaðilum.Hægt er að nálgast skýrslu Halldórs í samráðsgáttina HÉRLEB vekur athygli á að allir geta sent inn umsögn. 

Previous
Previous

Eldra fólk á Suðurlandi hefur stofnað aðgerðarhóp

Next
Next

Umbúðalausir eldri borgarar