Endurreikningur tekjutengdra greiðslna ársins 2015

Endurreikningur tekjutengdra greiðslna ársins 2015

21.6.2016

Tryggingastofnun hefur lokið endurreikningi á tekjutengdum greiðslum ársins 2015 hjá stærstum hluta lífeyrisþega. Einstaklingar geta skoðað niðurstöður eigin endurreiknings á Mínum síðum. Til að tryggja að lífeyrisþegar fái réttar greiðslur, sem eru í samræmi við raunverulegar tekjur þeirra á árinu 2015, miðast endurreikningurinn við tekjuupplýsingar í staðfestum skattframtölum. Endurreikningurinn er svo borinn saman við það sem greitt hafði verið á árinu. Niðurstaðan leiðir síðan í ljós hvort lífeyrisþegi fékk rétt greitt, vangreitt eða greitt umfram rétt.Samtals var endurreiknað fyrir 53 þúsund lífeyrisþega sem fengu greidda rúmlega 73,6 milljarða króna í tekjutengdar greiðslur á síðasta ári. Þar af voru 34 þúsund ellilífeyrisþegar og 19 þúsund örorkulífeyrisþegar.Niðurstaða endurreikningsins leiðir í ljós að 49% þeirra sem fengu tekjutengdar greiðslur á síðasta ári eiga inneign hjá TR upp á samtals 2 milljarða króna en 38% hafa fengið ofgreitt samtals 2,6 milljarða króna. Ofgreiðslum fækkar á milli ára. Meðalupphæð inneigna sem lífeyrisþegar eiga hjá TR er rúmlega 77 þúsund krónur en meðalskuld þeirra sem hafa fengið ofgreitt er rúmlega 128 þúsund krónur.Uppgjör vegna endurreikningsTR mun gera upp við þá lífeyrisþega sem eiga inneign með eingreiðslu þann 1. júlí næstkomandi. Innheimta skulda sem orðið hafa til vegna ofgreiðslu á síðasta ári hefst hins vegar þann 1. september næstkomandi. Miðað er við að skuldin verði greidd á 12 mánuðum en ef það reynist lífeyrisþegum íþyngjandi er hægt að semja um lengri tíma.Niðurstöður á Mínum síðumLífeyrisþegar geta skoðað niðurstöður endurreikningsins á Mínum síðum á tr.is. Næstu daga verður einnig send tilkynning í pósti til þeirra sem þurfa að greiða til baka vegna ofgreiðslu og til dánarbúa.Lífeyrisþegar eru hvattir til að skoða niðurstöðu sína á „Mínum síðum“ en einnig er hægt að óska eftir að fá niðurstöðuna senda í pósti á tr.is eða með því að hafa samband við stofnunina í síma 560 4460 og með því að senda tölvupóst á tr@tr.isFara á Mínar síður

Previous
Previous

BORGARAFUNDUR Í HÁSKÓLABÍÓ 28. SEPT. KL. 19.30

Next
Next

Formannafundur