Fræðslumyndband fyrir þá sem eru að hefja töku ellilífeyris
- Ertu að fara að ljúka störfum?
- Ertu ekki með á hreinu réttindi þín gagnvart Tryggingastofnun?
- Í þessum fyrirlestri TR er farið yfir allt það helsta sem gott er að vita áður en sótt er um ellilífeyri hjá TR.
- Hvernig sótt er um, hverjir eiga rétt, hvaða réttindi eru í boði og hvaða leiðir geta hentað. Þá er farið yfir mikilvægi þess að skila inn réttri tekjuáætlun og það hvernig tekjur hafa áhrif á ellilífeyri frá TR.