Heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk ýtt úr vör
Félagsmálaráðherra, heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra undirrituðu í gær ásamt formanni stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélga og formanni Landssambands eldri borgara, viljayfirlýsingu um endurskoðun á þjónustu við eldra fólk í landinu.
Þjónustan heyrir í dag undir þessi þrjú ráðuneyti og hluti hennar undir sveitarfélögin, en margir innan hreyfingar eldri borgara telja það flækja þessi mál og tefja hversu margir fara með þau.
Verkefnisstjórn hefur verið skipuð og er henni ætlað að leggja fram á þingi á næsta ári, aðgerðaáætlun til fjögurra ára.
Viljayfirlýsingin hljóðar svona:
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram það markmið að tryggja eldra fólki þjónustu við hæfi, hvort sem um er að ræða stuðningsþjónustu eða heilbrigðisþjónustu, á forsendum þess sjálfs, á réttu þjónustustigi og á viðunandi tíma. Þverfaglegt samstarf félags- og heilbrigðisþjónustu er grundvallaratriði til að ná fram samlegðaráhrifum fagþekkingar á hvoru sviði fyrir sig og tryggja þannig betri þjónustu við stækkandi þjóðfélagshóp meðal annars með samþættingu á þjónustu, forvörnum, heilsueflingu og aukinni virkni fólks.
Ráðherrar félags- og vinnumarkaðsmála, heilbrigðismála, fjármála- og efnahagsmála og Samband íslenskra sveitarfélaga og Landsambands eldri borgara lýsa yfir vilja til þess að auka samstarf og samvinnu varðandi málefni eldra fólks með það að markmiði að tryggja eldra fólki samhæfða þjónustu við hæfi, á réttu þjónustustigi og á réttum tíma hvort sem um er að ræða stuðningsþjónustu á vegum sveitarfélaga eða heilbrigðisþjónustu á vegum ríkisins. Samþætting þjónustu við eldra fólk mun leiða af sér aukin lífsgæði og er mikilvæg til þess að tryggja að þjónustukerfi hér á landi muni ráða við vænta fjölgun eldra fólks á næstu árum.
Skipuð hefur verið verkefnisstjórn sem hefur það hlutverk að leiða vinnu við heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk, að stuðla að samvinnu og samhæfingu á milli ráðuneyta, sveitarfélaga og annarra þjónustuaðila, forgangsraða og útfæra tímasett markmið í aðgerðaáætlun til fjögurra ára sem lögð verði fram á Alþingi vorið 2023. Í framhaldi af því skal verkefnastjórnin vinna skipulega að innleiðingu og framkvæmd fyrrgreindrar aðgerðaáætlunar meðal annars með tillögum um hvaða breytingar á lögum og reglugerðum þarf að ráðast í til að ná fram þeim markmiðum sem sett eru fram.
Helgi Pétursson formaður LEB fagnar yfirlýsingunni og segir í samtali við vefmiðilinn Lifðu núna að Landssambandið hafi talað fyrir því lengi að farið yrði í að samhæfa þá þjónustu sem þegar er fyrir hendi. „Nú reynir á hvað hægt er að gera“, segir hann.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra segir að viljayfirlýsingin sé risastórt skref í þá átt að bæta lífsgæði aldraðra, en það sé ekki hægt að gera nema með því að samhæfa aðgerðir allra sem eiga aðkomu að málinu.
Aðgerðaáætlunin skal a.m.k. fela í sér aðgerðir sem fjalla um:
- samþættingu stuðningsþjónustu og heimahjúkrunar/heilbrigðisþjónustu heim
- þjónustu við fólk með heilabilun
- dagdvöl/dagþjálfun
- heilsueflingu
- einmanaleika og geðrækt
- sértæk húsnæðis- og búsetumál þ.m.t. hjúkrunarheimili
- nýsköpun og tækniþróun
Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili ráðherrum drögum að aðgerðaáætlun fyrir 15. nóvember 2022.
Verkefnisstjóri hefur verið ráðinn. Það er Berglind Magnúsdóttir, öldrunarsálfræðingur. Hún hefur mikla reynslu af störfum á þágu eldra fólks, síðast sem skrifstofustjóri öldrunarmála á velferðarsviði Reykjavíkurborgar.
Ólafur Þór Gunnarsson öldrunarlæknir og fyrrverandi þingmaður hefur verið skipaður formaður nýskipaðrar verkefnisstjórnar, en hann er öllum hnútum kunnugur þegar kemur að málefnum eldra fólksins.
Verkefnastjórnin er þannig skipuð:
- Ólafur Þór Gunnarsson formaður án tilnefningar.
- Birna Sigurðardóttir fulltrúi félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, án tilnefningar.
- Elsa B. Friðfinnsdóttir fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins, án tilnefningar.
- Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins, án tilnefningar
- Guðmundur Axel Hansen tilnefndur af fjármálaráðuneytinu.
- Marta Guðrún Skúladóttir tilnefnd af fjármálaráðuneytinu.
- Kjartan Már Kjartansson tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
- Sigrún Ingvarsdóttir tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
- Helgi Pétursson tilnefndur af Landssambandi eldri borgara.